
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Þorgerði Kristínu Þráinsdóttur í embætti forstjóra ÁTVR en greint er þessu í tilkynningu frá stjórnarráðinu
Þorgerður var valin úr hópi umsækjenda um stöðuna, sem auglýst var í apríl síðastliðnum. Hún býr yfir víðtækri reynslu af stjórnunarstörfum á smásölumarkaði að sögn yfirvalda og hefur frá árinu 2014 gegnt starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar. Áður starfaði hún í yfir áratug hjá Lyfju hf., sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs og mannauðsstjóri.
„Þorgerður er með B.A. og Cand.Psych. gráðu í sálfræði, með áherslu á vinnu- og skipulagssálfræði. Þá hefur hún einnig lokið PMD stjórnendanámi auk fjölmargra námskeiða tengdum stjórnun og stefnumótun.“
Þorgerður er skipuð til fimm ára frá 1. september.
Komment