1
Innlent

Gæsluvarðhaldi yfir Margréti Löf aftur framlengt

2
Peningar

Einar hneykslast á nýjustu kaupum íslenska ríkisins

3
Heimur

Síðasta myndin af týnda Skotanum birt

4
Innlent

Líkamsárás í Hafnarfirði

5
Pólitík

Halla Tómasdóttir nær launum Donalds Trump

6
Pólitík

Ráðherrar stefna í mikla launahækkun eftir stór orð í stjórnarandstöðu

7
Innlent

Kæra vegna líkamsárásar á FM95BLÖ tónleikunum komin fram

8
Innlent

Sjúkrabíll sendur í Mosfellsbæ vegna vinnuslyss

9
Heimur

Vegfarandi hættulega slasaður eftir árekstur við hjólreiðamann á Kanaríeyjum

10
Heimur

Dómari veitir Osment annað tækifæri

Til baka

Jón Ásgeir aftur tengdur fjölmiðlarekstri

Með stórri fjárfestingu Skeljar í Sýn snúa Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir aftur í aðkomu að fjölmiðlunum.

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir JóhannessonEftir mikla lækkun á virði Sýnar í Kauphöllinni sneri Jón Ásgeir aftur í aðkomu að félaginu.
Mynd: Skel

Fjárfestingarfélagið Skel hefur keypt rúm 9% í Sýn og er sá hlutur metinn á rúmlega hálfan milljarð króna. Félagið á nú rúm 10% í Sýn. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar.

Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeir Jóhannessonar, er einn af stærstu eigendum Skeljar í gegnum eignarhald á félaginu Streng ehf. sem á helming í Skel á móti lífeyrissjóðum og fleiri. Í dag er Jón Ásgeir stjórnarformaður Skeljar. Þetta markar ákveðna endurkomu þar sem þau hjónin seldu einmitt fjölmiðlahluta Sýnar á sínu tíma.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna seldi allan sinn hlut til Skeljar í vikunni. Sá hlutur var 5,67% en ekki liggur fyrir hver eða hverjir seldu hin rúmu 3% sem Skel keypti.

Gengi hlutabréfa í Sýn hafa eftir daginn í dag fallið um þriðjung á einu ári. Í dag hækkaði gengið hins vegar um 16%. Óvissa hefur verið í kringum áform félagsins síðustu misserin og hefur starfsmannaflótti frá Sýn verið áberandi í fjölmiðlum á árinu. Sýn sendi frá sér afkomuviðvörun 10. febrúar síðastliðinn vegna versnandi horfa.

Í vikunni var einnig tilkynnt að nýr stjórnarmaður kæmi inn í félagið á föstudag. Það er Heiðrún Lind Marteinsdóttir, sem einnig er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Sýn gefur meðal annars út Vísi.is, Stöð 2, Bylgjuna og FM-957.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


steinunnolina_bergsveinn
Fólk

Leiðir skilja hjá Steinunni Ólínu og Bergsveini

Inga Sæland
Pólitík

Inga breytir lögum um bílastæði

Héraðsdómur Reykjavíkur
Innlent

Móðir ók drukkin með börn sín í bílnum

Gufunes
Innlent

Þrír ákærðir fyrir manndráp í Gufunessmálinu

Bókahornið
Innlent

Fjölskylda Guðrúnar Birnu útbjó bókahorn á Barnaspítalanum

Einar Sveinbjörnsson
Peningar

Einar hneykslast á nýjustu kaupum íslenska ríkisins

Óléttar konur á Gaza
Heimur

Tugþúsundir barnshafandi kvenna á Gasa í hættu vegna lyfja- og matarskorts

Loka auglýsingu