
Þann 11. júní tók Samkeppniseftirlitið þá ákvörðun að leggja dagsektir á Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) vegna brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Eru dagsektirnar lagðar á til þess að knýja á um að SVEIT fari að samkeppnislögum og afhendi umkrafin gögn.
Samkeppniseftirlitið ákvað að hefja rannsókn á SVEIT í kjölfar þess að ASÍ, Efling og Starfsgreinasambandið lögðu fram kvörtun vegna „ólögmæts verðsamráðs fyrirtækja á veitingamarkaði og ólögmæts verðsamráðs innan Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði“. Er því haldið fram að gerð SVEIT á einhliða kjarasamningi við félagið Virðingu, þar sem kveðið er á um launakjör á veitingamarkaði, hafi farið gegn samkeppnislögum
Samkvæmt ákvörðun eftirlitsins skal SVEIT greiða dagsektir að fjárhæð 1.000.000 kr. á dag þar til umbeðin gögn hafa verið afhent.
Mannlíf hafði samband við Samkeppniseftirlitið til að spyrja hvort SVEIT hafi afhent gögnin.
„SVEIT hefur ekki afhent Samkeppniseftirlitinu umkrafin gögn,“ segir Hulda Hákonardóttir, verkefnastjóri hjá Samkeppniseftirlitinu, við fyrirspurn Mannlífs. „Samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 21/2025 dags. 11. júní 2025 ber samtökunum að greiða 1.000.000 kr. dagsektir þar til gögnin eru afhent samkvæmt upplýsingaskyldu 19. gr. samkeppnislaga. SVEIT hefur kært framangreinda ákvörðun til áfrýjunarnefndar samkeppnismála en samkvæmt samkeppnislögum falla dagsektir ekki á fyrr en niðurstaða hennar liggur fyrir. Úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála skal liggja fyrir innan sex vikna frá kæru.“
Komment