
Steingrímur Stefánsson leiðsögumaður í Laxá í Aðaldal lést á heimili sínu þann 24. júní síðastliðinn, aðeins 56 ára að aldri.

Rithöfundurinn og leikarinn Gunnar Helgason minnist vinar síns sem „féll frá í fyrradag. Hann Steini - Steingrímur Stefánsson - var leiðsögumaður okkar bræðra í Aðaldalnum í nokkur ár og hann var svo sérstakur, svo einstakur að það myndaðist djúp vinátta okkar í millum.“
Gunnar minnist vinar síns með mikilli hlýju og segir að „þegar ég var við tökur á Allra síðasta veiðiferðin eyddum við nokkrum dögum saman við að keyra með ánni, ræða veiðistaði og bera saman bækur okkar. Hans bók var vitaskuld miklu þykkari en mín en hann hlustaði af sinni einstöku þolinmæði þegar ég talaði af mis mikilli visku. Og vináttan dýpkaði.“
Auk laxveiðinnar var Steingrímur mjög virkur og stoltur félagi í björgunarsveitinni í Aðaldal og hans er víða minnst með mikilli hlýju á samfélagsmiðlum og víðar.
Komment