
Hjálmar Sveinsson lykilmaður í borgarstjórnarhópi Samfylkingarinnar segist vera ánægður með nýja könnun og sú ánægja kallar fram hlý og falleg orð:
„Athyglisverð niðurstaða úr skoðanakönnun,“ segir Hjálmar og bætir við:
„Meirihlutinn í borginni heldur velli ef kosið yrði nú.“
Það leiðist Hjálmari ekki og heldur það að Samfylkingin er á ansi miklu skriði og er nú flokka stærstur á landinu öllu. Hann er líka ánægður með forystumann Sósíalista, Sönnu Magdalenu Mörtudóttir:
„Samfylkingin bætir miklu við sig og mælist með 26 % fylgi, eftir að hafa verið leiðandi í borgarstjórn í 15 ár, og sósíalistar undir fallegri forystu Sönnu Magdalenu koma sterk inn.“
Komment