1
Pólitík

Íslendingar í klemmu á NATO-fundinum

2
Landið

Hrósað fyrir hóflegt verð

3
Fólk

Andri „á flandri“ selur útsýnisíbúð

4
Fólk

Íslenskir áhrifavaldar ósáttir við fjölmiðla

5
Innlent

Eitt undarlegasta gistirými heims ofan á jökullóni á Íslandi

6
Landið

Vilja laxeldi í ósnortnum firði

7
Innlent

Orkuveitunni meinað að gera tilraunir fyrir fleiri vindmyllur

8
Heimur

Bylgja kvennamorða skekur Danmörku

9
Peningar

Stórkaup Stjörnublikks

10
Peningar

Samkaup segir 22 starfsmönnum upp

Til baka

Skrefi nær að banna gjaldtöku fyrir handfarangur

Evrópusambandið ræðir að banna flugfélögum að rukka fyrir handafarangur

Icelandair Flugvél flug
Flugvél IcelandairSamþykki Evrópuþingið tillöguna mega íslensk flugfélög ekki rukka fyrir handfarangur.
Mynd: Icelandair.

Evrópskir þingmenn þrýstu á þriðjudag á að flugfélögum yrði bannað að rukka farþega fyrir lítinn handfarangur, en flugiðnaðurinn mótmælir harðlega.

Samgöngunefnd Evrópuþingsins samþykkti tillögu sem myndi leyfa ferðamönnum að taka með sér lítinn hlut til persónulegra nota, svo sem handtösku eða bakpoka, ásamt handfarangri allt að sjö kíló að þyngd, án aukagjalds.

Markmiðið aðgerðarinnar var að spara farþegum „óréttmætan aukakostnað“, sagði Matteo Ricci, þingmaður úr miðju-vinstri flokki og aðalflutningsmaður frumvarpsins.

Mörg lágfargjaldaflugfélög leyfa aðeins einn lítinn hlut til persónulegra nota með keyptum flugmiða, og rukka aukalega fyrir annan handfarangur.

Flugfélög Evrópu (A4E), hagsmunasamtök í greininni, fordæmdu tillöguna og sögðu að hún myndi leiða til hærri fargjalda og aukins kostnaðar fyrir þau sem ferðast með léttan farangur.

„Að þvinga fram innifalinn handfarangur… skyldar farþega til að greiða fyrir þjónustu sem þeir vilja kannski ekki né þurfa“ sagði Ourania Georgoutsakou, framkvæmdastjóri A4E, fyrir atkvæðagreiðsluna.

Aðgerðin, sem myndi ná til allra fluga sem fara eða koma innan ríkja Evrópusambandsins og EES, var samþykkt sem hluti af pakka breytingatillagna að reglugerðum um réttindi farþega sem framkvæmdastjórn ESB lagði fram.

Samgöngunefndin samþykkti einnig að innleiða sameiginlegt eyðublað fyrir beiðnir um bætur og endurgreiðslur, ásamt skilgreindum lista yfir óvenjulegar aðstæður, svo sem náttúruhamfarir eða stríð, þar sem flugfélögum er heimilt að neita um slíkar bætur.

Tillögurnar þurfa næst að fara í atkvæðagreiðslu hjá þinginu.

Búist er við breytingum þar sem tillögurnar þurfa að vera samræmdar og samþykktar af öllum aðildarríkjum áður en þær geta tekið gildi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Eyjafjörður
Landið

Reynir að stöðva varasamt fiskeldi í Eyjafirði

„Lífríki fjarðarins er í húfi,” segir Harpa Barkardóttir.
tanja yr
Fólk

Íslenskir áhrifavaldar ósáttir við fjölmiðla

Nettó
Peningar

Samkaup segir 22 starfsmönnum upp

Héraðsdómur Reykjaness
Innlent

Sakfelld fyrir að dreifa nektarmyndum af fyrrum eiginmanni sínum

Hafliði Breiðfjörð
Innlent

Truflandi hvað áhugi á Evrópumóti kvenna er lítill hér á landi

Bjössi og John
Sport

Víkingar taka til og láta tvo þjálfara fjúka

Egill Helgason
Pólitík

Minnir á „hvernig Íraksstríðið gerði út af við ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar“

Birnir Bretland
Myndband
Heimur

Birnir brutust úr búrum í Bretlandi

Óskar Hrafn Þorvaldsson
Sport

„Er ekki bara best að hætta þessu og fara að gera eitthvað annað?“

Hildur Sverrisdóttir
Pólitík

Hildur segir engin þinglok án þess að Kristrún bakki

alzheimer
Fólk

Afþakkaði afmælisgjafir og gaf til Alzheimersamtakanna

Guðrún Hafsteinsdóttir 23998
Pólitík

„Niðurlæging fyrir meirihlutann sem horfir ráðalaus á gíslatöku ræðustólsins“

Heimur

Icelandair Flugvél flug
Heimur

Skrefi nær að banna gjaldtöku fyrir handfarangur

Evrópusambandið ræðir að banna flugfélögum að rukka fyrir handafarangur
Brúður Myrt
Heimur

Brúður myrt í eigin brúðkaupi í Frakklandi

Birnir Bretland
Myndband
Heimur

Birnir brutust úr búrum í Bretlandi

Lögreglan Danmörku
Heimur

Bylgja kvennamorða skekur Danmörku

Alexander Dugin
Heimur

Heili Pútíns: „Þriðja heimsstyrjöldin er hafin“

Loka auglýsingu