
Iðunn Pála Guðjónsdóttir, skólastjóri Hvassaleitisskóla, hefur ekki svarað ítrekuðum fyrirspurnum Mannlífs um árás sem sjö ára gamalt barn varð fyrir við skólann í byrjun maí.
Sirrý Svöludóttir, móðir barnsins, greindi frá árásinni á Facebook. Í færslunni hennar segir hún að óþekkt kona með hund hafi hrækt í andlit sonar síns og öskrað á hann. Það gerði hún eftir að prik sem strákurinn var að kasta upp í loft lenti á öxl konunnar.
Sirrý sagði einnig að mörg börn hafi verið vitni af atvikinu og öskrið í konunni hafi verið svo hávært að kennari á 2. hæð Hvassaleitisskóla hafi heyrt í því.
„Eftir sat sonur minn – titrandi af hræðslu, í algjöru losti og gjörsamlega skelkaður. Það tók okkur marga klukkutíma að ná upp úr honum hvað hafði gerst, svo mikið var áfallið.“
Sirrý birti einnig mynd af konunni og bað fólk að hafa samband við sig kannist það við konuna.
Í fyrirspurnum Mannlífs til skólastjórans var meðal annars spurt um viðbrögð skólans í málinu og næstu skref.

Komment