
Sigurður Fannar Þórsson var fundinn sekur um manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa banað tíu ára gamalli dóttur sinni við Krýsuvíkurveg, vestan við Vatnsskarðsnámur, síðastliðið haust.
Þetta kemur fram á DV og þar segir einnig að Sigurður hafi banað dóttur sinni með því að slá hana oft í höfuðið með hamri með þeim afleiðingum að hún beið bana.
Var Sigurður Fannar dæmdur í sextán ára fangelsi og var auk þess ákærður og sakfelldur fyrir vörslu eiturlyfja.
Samkvæmt DV kemur það fram í dómnum að Sigurður Fannar gekkst óbeint við því að hafa banað dóttur sinni með hamri. Hann játaði þó ekki að hafa haft uppi ásetning um að myrða hana.
Komment