
Akraneskaupstaður hefur ráðið Sigrúnu Ósk Kristjánsdóttur í nýtt starf upplýsingafulltrúa en greint er frá því í tilkynningu frá sveitarfélaginu.
Alls barst 31 umsókn um starfið samkvæmt tilkynningunni.
Sigrún Ósk er með BA-próf í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur víðtæka og farsæla reynslu úr fjölmiðlum, þar sem hún hefur starfað sem blaðamaður, ritstjóri og við dagskrárgerð ýmissa sjónvarps- og útvarpsþátta. Auk þess hefur hún gegnt starfi markaðs- og atvinnufulltrúa hjá Akraneskaupstað og verið varamaður í bæjarstjórn.
„Með starfi upplýsingafulltrúa er ætlun okkar að bæta upplýsingamiðlun til íbúa Akraness og viðskiptavina Akraneskaupstaðar. Það er mikill fengur fyrir sveitarfélagið að fá Sigrúnu Ósk til starfa. Hún býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði miðlunar og þekkir jafnframt samfélagið og málefni Akraness afar vel,“ segir Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri.
„Ég er afar þakklát fyrir að hafa verið treyst fyrir því mikilvæga verkefni að móta nýtt starf upplýsingafulltrúa hjá Akraneskaupstað og er full tilhlökkunar að hefja störf. Mér hefur alla tíð þótt mjög vænt um þetta góða bæjarfélag og er spennt fyrir að leggja mín lóð á vogarskálarnar," segir Sigrún Ósk.
Sigrún Ósk mun hefja störf í byrjun ágúst.
Komment