
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Selmu Barðdal Reynisdóttur í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum
„Selma hefur starfað sem sérfræðingur í ytra mati og eftirliti á skrifstofu greininga og fjármála í mennta- og barnamálaráðuneytinu frá því í apríl 2024. Áður starfaði hún sem fræðslustjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á árunum 2018–2024 og sem ráðgjafi í fagráði eineltismála hjá Menntamálastofnun 2018–2021. Selma starfaði einnig hjá Sveitarfélaginu Skagafirði sem skólafulltrúi og uppeldis- og sálfræðiráðgjafi á árunum 2007–2018,“ segir í tilkynningunni.
„Selma er með MPA-gráðu í opinberri stjórnsýslu og diplómu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún er með Kandídatsgráðu í uppeldis – og sálfræðiráðgjöf frá Danmörku og B.Ed-gráðu í almennum kennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands.“
Í tilkynningunni er sagt að alls fimm hafi sótt um embættið en þegar greint var frá umsækjendunum í starfið voru sex nöfn skráð.
Umsækjendur um embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra
- Árni Gunnarsson
- Halla María Þórðardóttir
- Íris Helma Ómarsdóttir
- Selma Barðdal Reynisdóttir
- Vera Sólveig Ólafsdóttir
UPPFÆRT - Kristján Bjarni Halldórsson hafði samband við Mannlíf og kom því á framfæri að hann hefði dregið umsókn sína til baka. Ekki var greint frá því af hálfu stjórnvalda en það er hér með leiðrétt.
Komment