
Nokkuð neikvæð umræða hefur myndast í Facebook-hópunum Mæðratips og Ísland, þvert á flokka í dag og í gær um menningarhátíð sem haldin var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Hátíðin sem bar nafnið Menningar Garðurinn fór þar fram í gær og gat fólk mætt í garðinn án þess að borga fyrir aðgang. Í umræðum á netinu hafa einhverjir netverjar, margir nafnlausir, kvartað undan öðrum gestum og þá aðallega af þeim sem eru af erlendum uppruna.
Einn sem hefur komið undir nafni til að ræða hátíðina er fasteignasalinn Sigfús Aðalsteinsson en hann er skipuleggjandi mótmælanna sem fóru fram þarsíðustu helgi á Austurvelli. Var tilgangur þeirra að mótmæla stefnu yfirvalda í hælisleitendamálum.

Auk ummæla Sigfúsar segja nokkrir frá ofbeldi barna í garð annarra barna og árekstrum við foreldra.
Mannlíf sendi fyrirspurn á Fjölskyldu- og húsdýragarðsins vegna málsins.
„Menningargarðurinn sem haldinn var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær fór afar vel fram,“ segir í svari starfsfólks garðsins til Mannlífs.
„Metmæting var í garðinn og heimsóttu hann 6.500 gestir á öllum aldri í frábæru veðri. Starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins var við störf auk þess sem samfélagslögreglan var á svæðinu. Vegna mikils fjölda gesta mynduðust raðir í tæki og í veitingaskála og heyrst hefur af minniháttar pústrum sem urðu á milli gesta þegar leið á viðburðinn.“
Þá segir starfsfólkið að lögreglan og starfsfólkið hafa aðeins upplifað ánægju af viðburðinum og þykir afar leitt ef upplifun einhverra af hátíðinni var ekki jákvæð.

Komment