1
Innlent

Rannsókn á andláti Hans Löf lokið

2
Innlent

Nýbygging Félagsbústaða vekur hroll og aðdáun

3
Fólk

Sunneva tapaði 12 milljónum vegna svikahrapps á Tinder

4
Fólk

Ástráður og Eyrún skilja

5
Landið

Benedikt valinn fram yfir Daníel Frey og Hörpu

6
Fólk

Styrktartónleikar haldnir fyrir fjölskyldu Víglundar

7
Pólitík

Trump sat á móti Kristrúnu sem „fékk að minnsta kosti gott bros“

8
Innlent

Skemmdi veitingastað fyrir slysni

9
Heimur

Trump dekstraður og mærður af leiðtogum NATO

10
Peningar

Blússandi hagnaður hjá Costco á Íslandi

Til baka

Segir vinstri halla á RÚV vera bull

Anna Kristjánsdóttir hefur áhyggjur af stöðu fjölmiðla á Íslandi

Anna Kristjánsdóttir
Anna greinir ástandið í íslensku fjölmiðlaumhverfiTelur starfsfólk RÚV reyna standa sig vel í vinnu.

Anna Kristjánsdóttir vélstjóri blæs á sögusagnir að það sé vinstri halli á fréttastofu RÚV og segir að fólk ætti frekar að gleðjast yfir tilvist þess frekar en lasta fyrir litlar sakir.

„Í hvert sinn sem Ríkisútvarpið ber á góma vegna einhverra frétta hvar hægt er að tjá sig um fréttina, kemur ávallt einhver vanstilltur hægrimaður og krefst þess að það verði lagt niður með allskyns furðulegum orðsendingum sem venjulega segir miklu meira um þann sem tjáir sig en um RÚV. Oft eru þetta væringar um vinstrihalla á fréttastofunni,“ skrifar Anna á Facebook.

Hún tekur þó fram að hún hafi ekki alltaf verið sátt með RÚV og þá sérstaklega í samhengi við náttúruhamfarir og nefnir Suðurlandsskjálftann árið 2000 sem dæmi. Hún heldur þó að fréttamenn reyni sitt best við að sigla milli öfganna í stjórnmálum.

„Bogi Ágústsson fréttamaður emerítus og uppáhaldsfréttamaður okkar flestra Íslendinga var að eigin sögn boðinn til að leysa af á fréttastofu sjónvarps vegna þess að hann hafði verið virkur í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta (hægrisinnaðra stúdenta), en sem betur fer örlaði aldrei á persónulegum skoðunum hans í pólitík alla þessa áratugi sem hann var á fréttastofunni. Þá hafa margir sem hafa verið taldir hægra megin við miðju starfað hjá Ríkisútvarpinu, Hallur Hallsson var fréttamaður á RÚV, Ingvi Hrafn Jónsson, Sigmar Guðmundsson, Einar Þorsteinsson og margir aðrir. Á móti má nefna Sigurð G. Tómasson sem var að eigin sögn bolað í burtu frá RÚV vegna skoðana sinna og ekki má gleyma Birnu vinkonu minni Þórðardóttur sem sótti margsinnis um störf á fréttastofunni, en var ávallt hafnað,“ heldur Anna áfram.

Hægri halli, ekki vinstri

„Að tala um vinstrihalla á fréttastofu RÚV er bull, Það væri nær að tala um hægrihalla, en höfum samt í huga að RÚV er sameign okkar allra og ekki síst núna þegar Morgunblaðið er orðið nánast alfarið í eigu útgerðarinnar og framkvæmdastýra SFS er komin í stjórn Sýnar sem á Visi.is og Bylgjuna auk ex Stöðvar 2.“

Þá nefnir hún Elon Musk og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum þar sem auðkýfingurinn dældi peningum í kosningabaráttu Donald Trump. Anna spyr hvort við viljum viðlíka ástand á Íslandi þegar stóru einkareknu fjölmiðlarnir eru komnir í eigu útgerðarinnar.

„Sem betur fer höfum við Ríkisútvarpið og eigum að efla það og treysta þó að vissulega getum við verið óánægð með eitt og annað og ég búin að fá mig fullsadda af „Með allt á hreinu“,“ skrifar hún að lokum um ástandið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Ásthildur Lóa Þórsdóttir
Innlent

Siðanefnd telur RÚV hafi brotið af sér í umfjöllun um Ásthildi Lóu

Ráðherrann fyrrverandi kærði umfjöllun RÚV til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands.
Bassi Maraj 2
Fólk

Bassi Maraj áður verið dæmdur fyrir líkamsárás

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Innlent

Vængstýfður Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur á flugi

Halldór Jón Gíslason
Landið

Halldór Jón hafði betur gegn Sjálfstæðiskonu

Veðurstofan
Innlent

Væta í kortunum og lægð á leiðinni

Lögreglubíll
Innlent

Brotist inn á vinsælan veitingastað

Víglundur Þorsteinsson
Fólk

Styrktartónleikar haldnir fyrir fjölskyldu Víglundar

listasafn reykjavíkur
Menning

Sex vilja stýra Listasafni Reykjavíkur

Trump nato
Heimur

Trump dekstraður og mærður af leiðtogum NATO

Heiðmörk.
Innlent

Ökumaður­inn sem lést var skráður eig­andi bif­hjóls­ins en hafði ekki öku­rétt­indi

Háteigsvegur 59
Innlent

Nýbygging Félagsbústaða vekur hroll og aðdáun

Kristrún Trump Þorgerður Katrín
Pólitík

Trump sat á móti Kristrúnu sem „fékk að minnsta kosti gott bros“

Heiðrún Anna Hlynsdóttir golf
Sport

Landslið kylfinga sem keppa á EM í sumar valið

Fólk

Bassi Maraj 2
Fólk

Bassi Maraj áður verið dæmdur fyrir líkamsárás

Raunveruleikastjarnan hefur í tvígang hlotið dóm
Anna Kristjánsdóttir
Fólk

Segir vinstri halla á RÚV vera bull

Víglundur Þorsteinsson
Fólk

Styrktartónleikar haldnir fyrir fjölskyldu Víglundar

Bassi Maraj
Fólk

Bassi dæmdur sekur fyrir líkamsárás

TInder
Fólk

Sunneva tapaði 12 milljónum vegna svikahrapps á Tinder

Loka auglýsingu