1
Innlent

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara

2
Heimur

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf

3
Innlent

Kanarífarar minnast Klöru á Klörubar

4
Fólk

Hallgrími barst gjafapoki úr óvæntri átt

5
Pólitík

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig

6
Innlent

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

7
Heimur

Netanyahu viðurkennir að vopnaður glæpahópur starfi fyrir Ísrael á Gaza

8
Heimur

Elon Musk virðist sjá eftir Epstein-færslunni

9
Fólk

Geri veldur reiði innan Spice Girls

10
Innlent

Sýra lak úr 1000 lítra bamba

Til baka

Sanna sökuð um að hunsa einelti Gunnars Smára

Mikið ósætti ríkir í Sósíalistaflokknum um þessar stundir

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi
Sanna ásökuðFrásagnir af meintu einelti í flokknum halda áfram.

Trausti Breiðfjörð Magnússon, fyrrverandi borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, segir Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, oddvita flokksins í Reykjavík, hafa hunsað ábendingar frá sér og öðrum um Gunnar Smára Egilsson, formann framkvæmdastjóra flokksins, og hans framkomu gagnvart öðrum flokksmeðlimum.

Mikil umræða hefur verið í fjölmiðlum og á netinu eftir að Karl Héðinn Kristjánsson sagði sig úr kosningastjórn Sósí­al­ista­flokks­ins í gær.

„Ástæðan er ein­föld: Ég get ekki leng­ur starfað inn­an for­ystu sem huns­ar lýðræðis­lega gagn­rýni, viðheld­ur óheil­brigðri menn­ingu og refs­ar þeim sem benda á vanda­mál­in,“ skrif­aði Karl á samfélagsmiðla og nefndi Gunnar Smára sérstaklega í því samhengi.

Gunnar Smári gaf síðar út að boðað yrði til skyndifundar og var sá haldinn í gærkvöldi.

Gunnar Smári Egilsson
Hafnar ölluSósíalistaflokkurinn er klofinn milli stuðningsfólks Gunnars Smára og þeirra sem vilja breytingar.
Mynd: Sósíalistaflokkurinn

Undir orð Karls tekur Trausti og nefnir ýmis dæmi um slæm samskipti sem hann hefur átt við Gunnar Smára á undanförnum árum. Ekki nógu með það þá kemur fram í athugasemd sem Trausti skrifaði á Facebook-hóp flokksins fyrr í dag að hann sé einnig ósáttur sína með viðbrögð Sönnu en hún hafnaði ásökunum Karls í gær og tók stöðu með Gunnari Smára.

„Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“
Trausti Breiðfjörð Magnússon, fyrrverandi borgarfulltrúi Sósíalista

„Svo það komi hér fram þá sagði ég þér frá því hvernig framkoma hans væri,“ skrifaði Trausti til Sönnu á samfélagsmiðlum í dag. „Ekki í jafnmiklum smáatriðum og hér, en ég lét þig vita að framkoma hans væri fráhrindandi. Þetta var nokkrum vikum áður en ég ákvað að biðjast lausnar úr borgarstjórn. Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja þá. Og það er tilfinning fleira fólks sem hefur sagt þér frá einelti sem það hefur orðið fyrir. Eins og þú hundsir ábendingarnar, segir kannski að þetta sé nú leiðinlegt, en stendur samt áfram með honum. Það sárnar mér. Varðandi skilaboðin, þá hef ég ekki áhuga á því að grafa þau sérstaklega upp. Ég man að hann sagði þetta og talaði um þetta. Fleiri félagar geta staðfest að hann talaði um þetta við þá líka. Að hann vildi ekki að við værum að pæla í þessu máli.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Miguel Uribe
Heimur

Forsetaframbjóðandi gekkst undir vel heppnaða skurðaðgerð eftir skotárás

Geri
Fólk

Geri veldur reiði innan Spice Girls

Kerti
Innlent

Kanarífarar minnast Klöru á Klörubar

Hallgrímur Helgason
Fólk

Hallgrími barst gjafapoki úr óvæntri átt

Lögreglan
Innlent

Æsilegur eltingarleikur lögreglu endaði með handtöku

Madleen
Heimur

Greta Thunberg og félagar nálgast Gaza-ströndina

Trump og Musk
Heimur

Elon Musk virðist sjá eftir Epstein-færslunni

Kristinn Hrafnsson
Innlent

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

Loka auglýsingu