
Spænska ríkissjónvarpinu verður refsað af Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva, ef kynnendur Eurovision minnast aftur á ástandið á Gazasvæðinu í lýsingu á keppninni í kvöld.
Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva hafa staðfest þetta í samtali við spænska blaðið El País.
Umdeilt er að Ísrael keppir í Eurovision-keppninni í ár þrátt fyrir yfirstandandi þjóðarmorð af hálfu ísraelskra yfirvalda og hers á Gazasvæðinu, samkvæmt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna og feiri óháðra aðila. Fjölmargir hafa hvatt til sniðgöngu keppninnar vegna þess og hefur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagt „skrítið og óeðlilegt“ að Ísraelar taki þátt í þessum aðstæðum. Bæði spænska ríkissjónvarpið og það íslenska hafa farið fram á umræðu á vettvangi Samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva um þátttöku Ísraels. Niðurstaða samtakanna er önnur.
Í annarri umferð undanúrslita Eurovision á fimmtudagskvöldinu nýttu lýsendur spænska ríkissjónvarpsins, RTVE, Tony Aguilar og Julia Varela, tækifærið þegar Yuval Raphael, fulltrúi Ísraels, steig á svið til að minna á beiðni sem RTVE sendi til Samtaka evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir mánuði síðan um að ræða þátttöku Ísraels í keppninni. Báðir lýsendur minntust einnig á að fleiri en 50.000 óbreyttir borgarar hefðu fallið í árásum í Gasa, þar af meira en 15.000 börn, samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum.
Samkvæmt El País verður vitnað til samskiptanna við Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva í útsendingu keppninnar á Spáni í kvöld.
Ísraelar völdu til keppninnar flytjanda sem hafði lifað af árás Hamas-liða 7. október 2023, sem hratt af stað ákvörðun ísraelskra yfirvalda um að hefja eyðileggjandi sprengjuárásir á gervallt Gazasvæðið. Ísraelar hafa vísað til reynslu Yuval Raphael í kynningu á henni sem keppanda. El País hefur eftir heimildarmönnum innan spænska ríkissjónvarpsins að þar ríki undrun yfir því að Samtök evrópskra sjónvarpsstöðva skuli „biðja um virðingu fyrir mannréttindum og fyrir friði og réttlæti“ á sama tíma og Eurovision-stofnunin „lítur ekki á það sem pólitíska yfirlýsingu þegar ísraelska sendinefndin undirstrikar að frambjóðandi þeirra sé fórnarlamb árásanna frá Hamas þann 7. október 2023“.
Í texta bréfsins minnir sambandið spænska ríkissjónvarpið á að „allir lýsendur þurfa að fylgja reglum hátíðarinnar og leiðbeiningum lýsenda“.
„Þessar leiðbeiningar,“ segir í bréfinu á ensku, „banna pólitískar yfirlýsingar sem gætu ógnað hlutleysi keppninnar. Tölfræði um fórnarlömb á ekki heima í pólitískt hlutlausri skemmtidagskrá sem hefur yfirskriftina Sameinuð í gegnum tónlist – sem stendur fyrir einingu.“ Þá segir: „Það er nauðsynlegt að lýsendur fylgi þessum reglum án undantekninga [...] til að varðveita hlutlaust eðli Eurovision og fylgja siðareglum og stöðlum sem settir hafa verið. Við væntum fullrar samvinnu frá RTVE til að forðast endurtekningu. Öll brot í framtíðinni gætu haft í för með sér sektir í samræmi við reglurnar,“ hefur El País eftir bréfinu.
Í umfjölluninni kemur einnig fram að yfirmenn ísraelska ríkissjónvarpsins KAN hafi sent formlega kvörtun til UER um hádegi á föstudag vegna ummæla lýsenda spænska ríkissjónvarpins. Nokkrum klukkustundum síðar höfðu voru fyrrgreindar kröfur lagðar fram án svigrúms til samtals.
Í lagatexta framlags Ísraels, sem heitir Nýr dagur mun rísa, er fjallað um að yfirstíga erfiðleika og að þeir sem kveðji dvelji áfram. „Nýr dagur mun rísa. Lífið heldur áfram. Allir gráta. Grátið ekki ein. Myrkrinu léttir. Sársaukinn mun líða hjá. En við verðum kyrr. Jafnvel þótt þú segir bless.“
Ísraelsk yfirvöld hafa meðal annars haft til umræðu að fjarlægja alla íbúa Gaza og að hernema svæðið varanlega.
Komment