
Kona var dæmd fyrir að afla og dreifa nektarmyndum af þáverandi eiginmanni sínum og annarri konu, þarf að greiða honum tæpar 500 þúsund krónur í miskabætur.
Horfði Héraðsdómur til þess að dreifing myndanna væri til þess fallið að valda honum vanlíðan.
Í janúar staðfesti Hæstiréttur dóm Landsréttar, þar sem konan var sakfelld fyrir brot gegn blygðunarsemi, með því að nálgast og dreifa nektarmyndum af manninum og annarri konu, án samþykkis þeirra beggja.
Taldi Héraðsdómur að þó myndsendingarnar hafi verið meiðandi væri ekki hægt að staðhæfa að athæfið væri af kynferðislegum toga, og að verknaðurinn hafi verið framinn í mjög mikilli reiði.
Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að nægileg sönnun lægi fyrir því að dreifing myndanna væri af kynferðislegum toga.
Sótti konan myndirnar í einkaskilaboðum er hún fann í tölvu sem fyrrverandi maðurinn hennar hafði haft afnot af á sínum tíma.
Fyrir aðalmeðferð málsins höfðu sakfellda konan og konan sem var á myndunum gert dómsátt um greiðslu á 680 þúsund krónum í miskabætur og vexti.
Komment