Handboltaþjálfarinn Rúnar Sigtryggson hefur verið leystur frá störfum hjá Leipzig í Þýskalandi.
Handboltaþjálfaranum Rúnari Sigtryggssyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðs Leipzig í efstu deild Þýskalands í handbolta, en Rúnar hafði verið við stjórnvölinn þar síðan í nóvember árið 2022.
Það er vefsíðan handbolti.is sem greindi fyrst frá.
Samningur Rúnars, sem átti frábæran feril hér heima með Þór Akureyri og Haukum og þá lék hann um langt árabil sem atvinnumaður erlendis ásamt fjöldamörgum landsleikjum, við Leipzig var til ársins 2027. Hins vegar töldu forráðamenn félagsins árangur liðsins á síðustu leiktíð vera talsvert undir væntingum þeirra. Því hafi þeir leitað á önnur mið.
Óhætt er að segja að Rúnar hafi staðið sig frábærlega á sinni fyrstu leiktíð með Leipzig er hann tók við liðinu stigalausu og skilaði því að lokum upp í áttunda sætið.
Þess má geta að sonur Rúnars, landsliðsmaðurinn Andri Már Rúnarsson, spilar með Leipzig.
Komment