
Framboðslistar Röskvu - samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, vegna kosninga til Stúdentaráðs voru kynntir í gær með stæl en kosingarnar fara fram 2. og 3. apríl næstkomandi.
Í tilkynningu frá Röskvu segjast samtökin standa fyrir raunverulega hagsmunabaráttu.
„Röskva einblínir á fjárhagsöryggi, samgöngur og húsnæðismál stúdenta. Í því samhengi berst Röskva fyrir hækkun grunnframfærslu námslána, bættum almenningssamgöngum, samgöngukorti fyrir stúdenta og öryggi á stúdentagörðum. Röskva hefur einnig verið leiðandi í baráttunni fyrir bættu aðgengi hreyfihamlaðra stúdenta innan háskólans, sálfræðiþjónustu fyrir stúdenta og málefnum foreldra í námi,“ segir í tilkynningunni
Þá þarf að tryggja ábyrga hagstjórn á skrifstofu Stúdentaráðs og gagnsæ og lýðræðisleg vinnubrögð í Stúdentaráði að mati Röskvu.
Fyrir neðan má sjá framboðslista félagsins hér fyrir neðan
Félagsvísindasvið:
- Helga Björg B. Óladóttir - Lögfræði
- Valería Bulatova - Hagfræði
- Auður Halla Rögnvaldsdóttir - Stjórnmálafræði
- Glódís Pálmadóttir - Viðskiptafræði
- Soffía Svanhvít Árnadóttir - Félagsráðgjöf
Varafulltrúar:
- Þórkatla Eggerz Tinnudóttir - Stjórnmálafræði
- Auður Einarsdóttir - Lögfræði
- Sigurður Óli Karlsson - Stjórnmálafræði
- Gréta Hallsdóttir - Félagsráðgjöf
- Ólöf Soffía Eðvarðsdóttir - Félagsfræði
Heilbrigðisvísindasvið:
- Guðlaug Eva Albertsdóttir - Sálfræði
- Stella Hlynsdóttir - Læknisfræði
- Ríkharður Ólafsson - Hjúkrunarfræði
Varafulltrúar:
- Viktor Viðar Valdemarsson - Læknisfræði
- Vera Mist Magnúsdóttir - Sálfræði
- Brynhildur Finnbjörnsdóttir - Geislafræði
Hugvísindasvið:
- Helena Guðrún Þórsdóttir - Enska
- Victoria Vdovina - Norræn fræði
- Jón Arnar Halldórsson - Sagnfræði
Varafulltrúar:
- Jón Karl Ngosanthiah Karlsson - Japanska
- Amanda Líf Fritzdóttir - Almenn bókmenntafræði
- Helgi James Price - Enska
Menntavísindasvið:
- Katla Vigdís Svövu- og Vernharðsdóttir - Leikskólakennarafræði
- Sigrún Ósk Hreiðarsdóttir - Tómstunda- og félagsmálafræði
- Auður Aþena Einarsdóttir - Grunnskólakennsla með áherslu á íslensku
Varafulltrúar:
- Olga Nanna Corvetto - Grunnskólakennsla með áherslu á íslensku
- Gunnar Þór Snæberg Jennýjarson - Starfstengt diplómanám fyrir fólk með þroskahömlun
- Magnús Bergmann Jónasson - Grunnskólakennsla með áherslu á list- og verkgreinar
Verkfræði- og náttúruvísindasvið:
- Magnús Hallsson - Lífefna- og sameindalíffræði
- María Björk - Efnaverkfræði
- Karl Ýmir Jóhannesson - Hugbúnaðarverkfræði
Varafulltrúar:
- Sigurbjörg Rannveig Stefánsdóttir - Hagnýtt stærðfræði
- Cynthia Anne Namugambe - Rafmagnsverkfræði
- Moses Jason Osabutey - Tölvunarfræði
Komment