1
Peningar

Halla Tómasdóttir fær 100 milljónir í arð

2
Innlent

Hreinsanir í Valhöll

3
Minning

Unnar Stefánsson er fallinn frá

4
Pólitík

Hallgrímur hæðist að „hefnd flottu krakkanna“

5
Fólk

Egill Helgason um kanadískan fyrirlesara: „Hvílíkur endemis auli“

6
Heimur

Norskur kvensjúkdómalæknir dæmdur fyrir tugi nauðgana

7
Heimur

Sex ára stelpa handtekin vegna morðs á hershöfðingja

8
Heimur

Risa eiturlyfjasmygl til Kanaríeyja stöðvað

9
Pólitík

Kristrún gerir ekki það sama og Bjarni Ben

10
Fólk

Verðlaunakokkur selur þokkafulla íbúð í Seljahverfi

Til baka

Risa eiturlyfjasmygl til Kanaríeyja stöðvað

48 einstaklingar voru handteknir í aðgerð lögreglu

Las Palmas
Las Palmas á KanaríEkki liggur fyrir hvort einhver Íslendingur hafi verið handtekinn
Mynd: Matti Mattila

Lögregluyfirvöld í nokkrum löndum hafa afhjúpað alþjóðlegan eiturlyfjasmyglhring sem smyglaði „miklu magni“ af kókaíni frá Brasilíu og Kólumbíu til Kanaríeyja, en spænska lögreglan greindi frá því fyrr í dag.

Talið er að glæpagengið hafi notað ellefu hraðbáta til að sækja eiturlyfin frá stærri „móðurskipum“ á mismunandi stöðum í Atlantshafi og síðan flutt þau til eyjaklasans, sem er staðsettur undan norðvesturströnd Afríku, að því er fram kemur í yfirlýsingu lögreglu.

Samkvæmt yfirlýsingunni er talið að þetta hafi verið „ein stærstu glæpasamtökin sem hafa stundað kókaínsmygl frá Suður-Ameríku til Kanaríeyja“ með þessum hætti. Lögreglan handtók 48 manns í aðgerðinni.

Yfirvöld hafa hingað til á þessu ári lagt hald á nær 3.800 kíló af kókaíni sem samtökin voru að smygla, ásamt 19 bátum og um 100.000 evrum sem tilheyrðu glæpasamtökunum.

Lögregluyfirvöld í Kólumbíu, Frakklandi, Portúgal, Póllandi og Grænhöfðaeyjum tóku einnig þátt í aðgerðinni.

Spánn er mikilvæg leið fyrir eiturlyfjasmygl til Evrópu vegna tengsla sinna við fyrrverandi nýlendur í Suður-Ameríku og nálægðar sinnar við Marokkó, sem er einn stærsti framleiðandi kannabis í heiminum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Inga Sæland
Pólitík

Aukið sorgarleyfi samþykkt á Alþingi

sindri
Myndir
Fólk

Verðlaunakokkur selur þokkafulla íbúð í Seljahverfi

Inga-Saeland-e1713029912932
Innlent

Inga segir Kvennaathvarfið lífsnauðsynlegt

Volker Turk
Heimur

Bandaríkjastjórn refsar fjórum dómurum með því að frysta eigur þeirra

Arne Bye
Heimur

Norskur kvensjúkdómalæknir dæmdur fyrir tugi nauðgana

Cho Tun Aung
Heimur

Sex ára stelpa handtekin vegna morðs á hershöfðingja

Þórshöfn við Þistilfjörð
Landið

„Ég náði dúninum en varpið fór forgörðum“

Loka auglýsingu