1
Innlent

Sigríður tekur við af Silju Báru

2
Pólitík

Víðir hefur áhyggjur af veiðigjaldinu

3
Fólk

Íris og Egill keyptu „forsetaíbúðina“ af Höllu Hrund fyrir hundrað milljónir

4
Peningar

IKEA innkallar vinsæla hvítlaukspressu

5
Innlent

Tveir verið sviptir starfsleyfi á árinu: „Al­geng­asta ástæðan er lyfjastuld­ur“

6
Menning

Leikarar Nolan setja svip sinn á Hvolsvöll

7
Innlent

Telja andlát ekki hafa borið að með saknæmum hætti

8
Pólitík

„Sósíalistar undir fallegri forystu Sönnu Magdalenu koma sterk inn“

9
Innlent

Inga skipar Tomasz sem formann innflytjendaráðs

10
Innlent

Sölumaður dauðans reyndi að flýja

Til baka

Raunverulegur fjöldi látinna á Gaza gæti verið 46 - 107% hærri en áður var talið

Allt að 109 þúsund Palestínumenn gætu hafa verið drepnir frá 7. október.

Örvænting er algjör á Gaza.
SyrgjendurMannsfallið á Gaza er talið mun meira en opinberar tölur gefa til kynna.

Frá því að stríðið á Gaza hófst í október 2023 hafa tölur um dauðsföll verið mjög umdeildar. Það er erfitt að telja fjölda látinna í stríði sem enn stendur yfir, en sérfræðingar reyna samt að fylgjast með. Ný rannsókn bendir þó til þess að opinberar tölur séu of lágar.

Óvenjulegt er hversu nákvæmar daglegar tölur berast frá Gaza, slíkar tölur eru t.d. ekki gefnar út frá Úkraínu. En líkt og í fyrri átökum hafa yfirvöld á Gaza, sem eru undir stjórn Hamas, birt daglegar tölur yfir látna Palestínumenn. Samkvæmt The Economist er eðlilegt að efast um þessar tölur, þar sem Hamas hefur líklega hagsmuni af því að ýkja mannfall óbreyttra borgara. Þó hefur það oft sýnt sig í fyrri átökum að tölur frá Ísrael og Sameinuðu þjóðunum eftir átök hafa í meginatriðum samræmst tölum sem birtar voru af Hamas á meðan á þeim stóð.

Þetta stríð hefur hins vegar verið umfangsmeira og staðið lengur en öll fyrri átök. Margar þeirra stofnana sem venjulega halda utan um mannfall, t.d. sjúkrahús, hafa verið eyðilagðar.

Samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu á Gaza höfðu 52.615 látist í stríðinu þann 5. maí. Líkt og áður eru tölurnar ekki sundurliðaðar eftir borgurum og Hamas-liðum. Ísraelskir embættismenn áætluðu í janúar að um 20.000 af þeim sem hefðu látið lífið væru vígamenn.

Heilbrigðisráðuneytið byggir tölur sínar á tveimur listum: annars vegar upplýsingum frá sjúkrahúsum og hins vegar netkönnun þar sem fólk hefur tilkynnt andlát, auk annarra gagna um fólk sem er talið látið en ekki enn auðkennt. Nýleg rannsókn sem birt var í læknatímaritinu The Lancet skoðaði þessar tvær skrár og bætti við þriðju: samantekt á andlátum sem skráð höfðu verið í minningarorðum á samfélagsmiðlum (aðeins dauðsföll af völdum áverka). Öll gögn innihéldu nafn og oft aldur og kyn, og í sumum tilvikum kennitölu. Óháðir rannsakendur hafa staðfest að fólk á listum heilbrigðisráðuneytisins sé nánast örugglega látið.

Í stað þess að styðjast við opinberu heildartöluna skoðuðu rannsakendur hversu mikil skörun væri á milli listanna þriggja fyrir tímabilið frá upphafi stríðsins til 30. júní 2024. Þeir notuðu þessa skörun til að áætla raunverulegan fjölda látinna og bera hann saman við opinberu tölurnar. Ef til dæmis allir 30 ára karlar á einum lista voru líka á hinum tveimur, þá voru líklega öll þau dauðsföll talin. Ef nöfnin voru mismunandi milli listanna var líklegt að þær væru mjög ófullkomnar.

Niðurstaða rannsóknarinnar var að raunverulegur fjöldi látinna gæti verið 46–107% hærri en opinber tala ráðuneytisins. Ef gert er ráð fyrir að þetta hlutfall hafi haldist óbreytt síðan í júní og það hafi ekki lækkað vegna betri upplýsingaflæðis í vopnahléi, þá gæti raunverulegur fjöldi látinna verið á bilinu 77.000 til 109.000 manns. Það samsvarar 4–5% af íbúum Gasa fyrir stríð.

Óvissan er þó mikil. Gögnin innihalda villur. Frá upphafi stríðsins hafa 3.952 manns verið teknir af listum ráðuneytisins eftir að hafa upphaflega verið skráðir látin. Ungir karlmenn, sem líklegir eru til að vera Hamas-liðar, kunna að vanta frekar á listana, ef hópurinn vill draga úr sýnileika eigin mannfalls. Þá hafa þúsundir látist vegna skorts á læknisaðstoð. Það gæti tekið langan tíma að fá heildarmynd af mannfalli í þessu stríði, jafnvel eftir að því lýkur. Og það gæti verið langt í það.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Orkuveitan framkævmdir Dyravegur vindmyllur
Innlent

Orkuveitan hefur umdeildar framkvæmdir

Leyfi fékkst frá Þorlákshöfn til að raska landi undir Hengli. Stefnt að 15 vindmyllum sem fara yfir 200 metra að hæð.
Bráðamóttaka
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir vinnuslys

Sigríður 2
Innlent

Leitin að Sigríði heldur áfram

Hellissandur
Landið

Halda „Burning Man” á Snæfellsnesi

Hlynur Gíslason
Innlent

Lögreglan lýsir eftir Hlyni

Hörður Svavarsson leikskólastjóri mynd
Minning

Hörður Svavarsson er fallinn frá

Amanda Justine Toi Þór Akureyri körfubolti
Sport

Íslandsmeistararnir styrkja sig - Amanda er mætt til leiks

Kristrún Frostadóttir mynd Samfylkingin
Innlent

„Betra að ræða málin augliti til auglitis en á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum“

Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsókarnflokksins og fyrrverandi forsetaframbjóðandi
Fólk

Íris og Egill keyptu „forsetaíbúðina“ af Höllu Hrund fyrir hundrað milljónir

IKEA er gríðarlega vinsæl verslun
Peningar

IKEA innkallar vinsæla hvítlaukspressu

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra
Pólitík

Vilja breyta lögum um tálmun lögreglurannsókna

rósaguðbjartsdóttir
Innlent

„Annaðhvort segir þú viljandi ekki satt og rétt frá eða þú varst ekki á staðnum“

Heimur

Adrian_Peterson_(46199469032)
Myndband
Heimur

NFL goðsögn lenti í blóðugum slagsmálum

Slagsmálin stórfurðulegu náðust á upptöku
Khameini Trump
Heimur

Æðstiklerkur Íran varar Donald Trump við

Israel Katz varnarmálaráðherra Ísraels og Benjamin Netanyahu
Heimur

„Má ekki leyfa honum að vera til“

Aurore Berge
Heimur

Samþykkisleysi verði grundvöllur nauðgunar

Cuparaque
Myndband
Heimur

Kveikti í barnsmóður sinni meðan hún hélt á syni þeirra

hamborg
Heimur

Þjóðverji handtekinn fyrir að hvetja börn til sjálfsskaða

Loka auglýsingu