Í dagbók lögreglu frá því í nótt er greint frá því að einn hafi verið handtekinn í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann hafði verið á leið inn á skemmtistað. Dyraverði grunaði að maðurinn væri með fíkniefni meðferðis og höfðu þeir samband við lögreglu. Lögregla kom á staðinn og leitaði á aðilanum eftir stutt samtal og reyndist það rétt og á manninum fundust ætluð fíkniefni.
Lögregla var kölluð til vegna hávaða í heimahúsi í miðbænum. Húsráðendur lofuðu að lækka og lögregla fór ekki í frekari aðgerðir í því húsi.
Tilkynnt var um líkamsárás á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur og samkvæmt lögreglu var rituð skýrsla vegna málsins.
Óskað var eftir aðstoð lögreglu á heimili þar sem tilkynnt var um aðila með hníf. Lögregla fór á staðinn og handtók viðkomandi, sem var þá óvopnaður, og fannst hnífurinn í fórum viðkomandi.
Lögregla var kölluð til þar sem tveir aðilar sáust brjóta rúðu í húsbíl. Lögregla kom á staðinn og fann báða aðilana og voru þeir handteknir grunaðir um eignaspjöll.
Lögregla hafði afskipti af aðila sem var að stunda leigubílaakstur án leyfis. Skýrsla var rituð vegna málsins að sögn lögreglu.
Þá var lögregla kölluð til vegna umferðaróhapps en þar hafði bifreið verið ekið aftan á aðra. Þrír höfðu slasast en talið er að þau hafi verið minni háttar.
Komment