
Í dagbók lögreglu frá því nótt og í gær er greint frá því að maður hafi verið kærður fyrir að fylgja ekki fyrirmælum lögreglu. Hann hafði verið með ólæti á dvalarheimili.
Þá var einn vistaður í fangageymslu eftir tvær líkamsárásir með stuttu millibili og annar var vistaður vegna þjófnaðar og ölvunarástands og sá þriðji vegna sölu á fíkniefnum.
Kvartað var vegna hávaða í íbúð í fjölbýli. Samkvæmt lögreglu var ítrekað kvartað. Lögreglan fór á staðinn og bað manninn um að lækka í tónlistinni. Hann hlýddi þeim fyrirmælum lögreglu.
Tilkynnt var um umferðaróhapp þar sem kerra losnaði og fór á ljósastaur sem þá þveraði veg.
Ekið var á gangandi vegfarandi en ekki var talið þörf á að fá sjúkrabíl á svæðið.
Komment