
Nokkuð rólegt hefur verið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 05:00 í morgun og til 17:00 í dag en alls eru 56 mál skráð í kerfinu á umræddu tímabili. Enginn gistir fangageymslu. Hér má sjá nokkur dæmi um verkefni lögreglunnar.
Lögreglan á Hverfisgötu var beðin um að aðstoða við að vísa óvelkomnum aðila í annarlegu ástandi út úr apóteki, sem hún og gerði. Sama lögregla sinnti útkalli vegna hugsanlegs yfirstandandi innbrot. Þegar hún kom á vettvang kom í ljós að málið átti sér eðlilegar skýringar.
Lögreglan sem annast verkefni í Hafnarfirði og Garðabæ barst tilkynning um lausa hesta. Sinnti lögreglan útkallinu.
Þá sektaði lögreglan sem sér um útköll í Kópavoginum og Breiðholtinu, ökumann bifreiðar fyrir að aka bíl sínum með filmur í framrúðum. Þá var ökuníðingur stöðvaður fyrir að keyra á 113 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 km/klst. Var hann aukreitis sektaður fyrir að vera á fjórum nagladekkjum. Brást ökumaðurinn verulega illa við og var ákaflega ósáttur við störf lögreglunnar og lét ljót orð falla í garð lögreglumanna.
Sama lögreglan sinnti útkalli vegna slagsmála í verslunarmiðstöð. Þegar lögreglan bar að garði voru gerendurnir farnir en málið er í rannsókn.
Komment