
Nýtt 80 rýma hjúkrunarheimili mun rísa við Þursaholt 2 á Akureyri en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, undirrituðu samkomulag þess efnis í dag og skoðuðu byggingarstaðinn ásamt fulltrúum úr bæjarstjórn, öldungaráði og stjórn félags eldri borgara á Akureyri.
„Ég er afar ánægð með að nýtt hjúkrunarheimili rísi á Akureyri og óska Akureyringum hjartanlega til hamingju. Gríðarleg þörf hefur verið fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila á Íslandi og nú er verkstjórn tekin við sem setur málið á dagskrá. Uppbygging hjúkrunarheimila er nú hafin fyrir alvöru,“ sagði Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um hjúkrunarheimilið.
„Það er ánægjulegt að sjá þetta mikilvæga verkefni verða að veruleika í góðu samstarfi við ríkið. Bygging nýs hjúkrunarheimilis er mikið framfaraskref fyrir Akureyri og skiptir máli fyrir alla bæjarbúa – ekki síst eldra fólk og aðstandendur þeirra. Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta þjónustu við eldri borgara og þetta verkefni er stór þáttur í þeirri vegferð,“ sagði Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar.
Komment