1
Innlent

Konan sem rændi kettinum Diego í átökum við afgreiðslukonu

2
Heimur

Ungur bílstjóri olli dauða þriggja vina sinna

3
Innlent

Lögreglan kannast ekki við hópnauðgun hælisleitenda á 16 ára stúlku

4
Peningar

Slæmar fréttir fyrir fólk með verðtryggð lán

5
Minning

Ólafur Gísli Hilmarsson er fallinn frá

6
Innlent

Harmar „slæma upplifun“ Írisar Vönju á viðbrögðum lögreglunnar

7
Heimur

Maður stökk í gegnum glugga í miðju rifrildi við kærustuna

8
Skoðun

Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki

9
Innlent

Áríðandi bréf til ráðherra

10
Fólk

Umdeildur handritshöfundur ákærður fyrir áreitni

Til baka

Norðurskautsvísindanefndin fer ekki fet

Ríkisstjórnin telur að málefni norðurslóða séu sífellt mikilvægari í alþjóðamálum

Akureyri
Skrifstofan verður áfram á AkureyriHefur verið þar síðan 2017
Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hefur samþykkt að framlengja starfsemi skrifstofu Norðurskautsvísindanefndarinnar á Akureyri út árið 2031 en skrifstofan hefur verið staðsett á Akureyri síðan árið 2017. Greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Samkvæmt tilkynningunni er skrifstofa nefndarinnar rekin sem hluti af starfsemi Rannís og hefur aðsetur á lóð Háskólans á Akureyri ásamt fleiri stofnunum sem sérhæfa sig í málum norðurslóða og mynda öflugt norðurslóðasamfélag. Aðild að nefndinni eiga vísinda- og rannsóknastofnanir frá 24 ríkjum, og er Rannís aðili að nefndinni fyrir Íslands hönd.

„Málefni norðurslóða eru sífellt mikilvægari í alþjóðamálum og það er sérstaklega mikilvægt fyrir Ísland að hafa skrifstofu nefndarinnar hér á landi. Nefndin leiðir saman rannsóknastofnanir og samtök frá fjölmörgum löndum og er mikilvægur vettvangur fyrir rannsóknir og vöktun á norðurslóðum, í alþjóðlegu samstarfi. Íslenskt vísindafólk tekur virkan þátt í starfi vinnuhópa sem starfa undir nefndinni og hefur starfið leitt af sér mikilvæga tengslamyndun í gegnum ráðstefnur á vegum nefndarinnar og alþjóðlegar vísindagreinar ásamt rannsóknaverkefnum á norðurslóðum,“ segir í tilkynningunni

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Heiða Björg borgarstjóri
Pólitík

Reykjavíkurborg vísar á bug frétt Morgunblaðsins

81779419_822972801498082_5559865054620688400_n
Heimur

Minningarmálverk af Kobe og Gigi Bryant skemmt með veggjakroti

Heimir Már Pétursson
Pólitík

Miklar breytingar á stjórn RÚV

494238459_10162385426232964_1045639532629654083_n
Innlent

Kristinn Hrafnsson hitti Lula og Assange í Róm

VÆB
Menning

VÆB sigurstranglegri en áður

Eyvör netöryggi
Pólitík

Hrafnkell nýr stjórnarformaður Eyvarar

bátaslys florida
Myndband
Heimur

Banvænt bátaslys í Flórída