
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hefur nú undirritað fimmtíu milljóna evra fjárfestingarlán. Eða sem nemur yfir sjö milljörðum króna, til Embla Medical, sem móðurfélags Össurar, til þess að fjármagna rannsóknar- og þróunaráætlun félagsins og er lánið til sjö ára.
Þetta kom fram í tilkynningu frá NIB og Emblu Medical.
Mun lánið eðlilega styðja Emblu Medical í að þróa nýjar læknisfræðilegar lausnir; sem auka hreyfanleika og lífsgæði fólks sem hefur misst útlimi eða býr við skerta hreyfigetu.
Rannsóknar- og þróunaráætlun Emblu miðar að því að beita nýjustu tækni til að létta líf þeirra er búa við skerta hreyfigetu.
Komment