1
Landið

Tvíburasystur björguðu barni í sundlauginni á Egilsstöðum

2
Innlent

Ný auglýsingaherferð Arion banka sögð „til skammar“

3
Fólk

Steinar og Katrín keyptu hús fyrir tæpan hálfan milljarð króna

4
Fólk

Tvíburasysturnar sem björguðu barninu: „Þetta fór vel og það skiptir öllu“

5
Minning

Óskar Sigurðsson er fallinn frá

6
Innlent

Jóhann ók freðinn á gangandi konu

7
Landið

Halldór Jón hafði betur gegn Sjálfstæðiskonu

8
Heimur

Einn frægasti glæpamaður Svíþjóðar látinn

9
Innlent

Lögreglan varar við gjafaleikjum á Facebook

10
Innlent

Hjólreiðamaður fluttur á bráðamóttökuna

Til baka

Misheppnuð kynlífsleit líkleg ástæða strandsins

Líklegt að honum hafi verið illa tekið.

Háhyrningur Geldinganes
Háhyrningurinn í nóttHjúpaður rakavörn náði háhyrningskarlinn að skrimta fram að næsta flóði. Hér er hann myndaður við hlið bjargvætta sinna.
Mynd: Víkingur

Líkleg ástæða þess að háhyrningur strandaði nálægt Geldinganesi í gærkvöldi er að hann hafi farið á fjörurnar við kvenkyns háhyrning, við litla hrifningu.

Háhyrningurinn, sem er ungt karldýr, strandaði um klukkan níu í gærkvöldi á stað sem heitir Gorvík og liggur nærri Korpúlfsstöðum. Hann festist aftur í grynningum eftir að hafa losnað um fjögur í nótt.

Edda Elísabet Magnúsdóttir, hvalasérfræðingur og lektor í líffræði við Háskóla Íslands, sagði í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að nokkrar ástæður gætu verið fyrir vegvillu háhyrningsins.

Háhyrningar Kyrrahafsmegin eru í hópum sem fylgja móður sinni alla ævi. Hér er það breytilegra. Að mati Eddu er einna líklegast að misheppnuð makaleit hafi leitt hann í strand, með þeim hætti að honum hafi verið vísað úr hópnum.

„Þar sem þetta er karldýr er ekkert ólíklegt að hann hafi verið á höttunum eftir kvendýri til að makast við. Og mögulega var honum bara ekki vel tekið.“

Karldýrin eiga það til að fara á flakk og svo finna þeir sinn hóp aftur. „Það er mjög óvanalegt að dýr sé rekið út úr hóp ef hann er hluti af honum, en það getur verið að þeir eru komnir á einhvern aldur, og kannski hentar það bara hópnum að hann finni sér einhvern annan.“

Aðrar ástæður geta komið til. Stundum sækja dauðvona háhyrningar í grynningar. „Ef þeir eru veikir lenda þeir oft í því hægt og rólega að reka upp í grynningar. Jafnvel sækja upp í grynningar ef þeir vita að þeir eru að drepast, þá er það ekkert óskaplega óvanalegt,“ sagði Edda Elísabet á Bylgjunni.

„Þegar það er mikið flóð og straumar geta þeir verulega misreiknað sig,“ segir hún.

Síðdegis í dag var orðið stórstreymt og tókst viðbragðsaðilum að hrekja háhyrninginn úr grynningunum og til hafs. Hann er nú frjáls, en hvað tekur við og hvort hann finni sinn hóp eða maka verður tíminn að leiða í ljós.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Eyjólfur Ármannsson
Innlent

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýr ávinningur fyrir grunnskólabörn

Foreldrar, skólastjórnendur og sveitarfélög eru ánægð með hvernig til hefur tekist varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Raufarhöfn -rautt hús
Innlent

Hafa kært úrskurðinn til Landsréttar

Wander Franco
Heimur

Hafnaboltastjarna dæmd fyrir að brjóta á barni

Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Pólitík

„Í dag er hún valdamesta manneskjan í Sjálfstæðisflokknum“

Lynghólar 1
Fólk

Auglýsingagúru selur gullfallegt raðhús

Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Innlent

Stjórnvöld viðurkenni stuðning við blaðamennsku sem þátt í varnarviðbúnaði

Júlí Heiðar Þórdís Björk
Menning

Júlí Heiðar er dáinn úr ást

Kerti
Minning

Óskar Sigurðsson er fallinn frá

Hús húsnæði heimili fasteignir
Ný frétt
Peningar

Óvænt verri verðbólga hækkar verðtryggð lán

Björn Leví Gunnarsson
Skoðun

Björn Leví Gunnarsson

Í liðinu - Að vera þingmaður 7. kafli

Grafarvogur
Innlent

Drukkinn hjólreiðamaður endaði á sjúkrahúsi

Lísbet og Katrín
Fólk

Tvíburasysturnar sem björguðu barninu: „Þetta fór vel og það skiptir öllu“

Hafnarfjörður 2024
Innlent

Hjólreiðamaður fluttur á bráðamóttökuna

Innlent

Eyjólfur Ármannsson
Innlent

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir skýr ávinningur fyrir grunnskólabörn

Foreldrar, skólastjórnendur og sveitarfélög eru ánægð með hvernig til hefur tekist varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Lögreglan
Innlent

Réðst á tvo lögreglumenn í fangaklefa

Raufarhöfn -rautt hús
Innlent

Hafa kært úrskurðinn til Landsréttar

Sigríður Dögg Auðunsdóttir
Innlent

Stjórnvöld viðurkenni stuðning við blaðamennsku sem þátt í varnarviðbúnaði

Grafarvogur
Innlent

Drukkinn hjólreiðamaður endaði á sjúkrahúsi

Hafnarfjörður 2024
Innlent

Hjólreiðamaður fluttur á bráðamóttökuna

Loka auglýsingu