
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason telur í beinu samhengi við ástand mála í heiminum í dag að ríkisstjórn Íslands þurfi að vara sig þegar kemur að stuðningi við Ísrael og Bandaríkin í þeim átökum er eiga sér stað í Íran, Ísrael og á Gaza.

Egill segir að vissulega sé klerkastjórnin í Íran „andstyggileg og ill tilhugsun að hún komi sér upp kjarnorkuvopnum.“
Hann nefnir til að mynda að það sé ekki klerkastjórnin í Íran „sem efnir til styrjaldar núna.“

Egill telur að núverandi ríkisstjórn sem tók við stjórnartaumunum í desember verði að fara varlega, verði hreinlega vara sig á stuðningi við Ísrael og Bandaríkjunum.

Hann segir beinum orðum að hann haldi „að ríkisstjórnin megi vara sig“ og minnir á „hvernig Íraksstríðið hálfpartinn gerði út af við ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar.“
Að lokum beinir Egill orðum sínum til Valkyrjanna sem eru í forsvari fyrir ríkisstjórnina, Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra:

„Þannig að ef til vill ættu Þorgerður og Kristrún að fara varlega í stuðningi við Bandaríkin og Ísrael.“
Komment