
Bugles er eitt vinsælasta snakk landsinsMistök urðu í framleiðsluferli
Mynd: MAST
Matvælastofnun varar neytendur við mikilli neyslu á Lay´s Bugles Nacho Cheese og Lay´s Bugles Original með best fyrir merkingu BF 22.11.2025, vegna þess að olíuefni sem ekki eiga heima í vörunum blönduðust í þær við framleiðslu. Ölgerðin hefur innkallað vörurnar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Ástæða innköllunar er að mistök urðu í framleiðsluferli þessara tilteknu vara og olíuefni sem ekki eiga heima i vörunum blönduðust þeim á framleiðslustigi. Eðlileg neysla varanna er fullkomnlega örugg, en ef þeirra er neytt í miklu magni um langan tíma getur það mögulega verið heilsuskaðandi. Eðli málsins samkvæmt er varað við neyslu á umræddum vörum.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við
- Vörumerki: Lay‘s
- Vöruheiti: Bugles Nacho Cheese og Bugles Original
- Geymsluþol: Best fyrir 22.11.2025
- Strikamerki: 8710398502308 (Nacho Cheese) 8710398502636 (Original)
- Framleiðandi: PepsiCo NL BOL
- Framleiðsluland: Holland
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Grjóthálsi 7-11, 110 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir um land allt.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment