
Grænlandsheimsókn Frakklandsforseta þykir senda Bandaríkjaforseta ansi skýr skilaboð vegna ásælni hans í Grænland.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti er væntanlegur til Grænlands og Macron ræðir við formann landsstjórnarinnar sem og forsætisráðherra Dana í dag.
Mette Frederiksen forsætisráðherra Dana er komin til Nuuk á Grænlandi til fundar við Frakklandsforseta sem og Jens-Frederik Nielsen, formann landstjórnarinnar.

Telja margir greinendur að heimsókn Macrons sé að sýna opinberlega og með augljósum hætti stuðning við Grænlendinga. Sendir Donald Trump Bandaríkjaforseta afar öflug skilaboð vegna yfirlýsinga Trumps varðandi yfirtöku Grænlands.
Orðum Macrons þar sem hann áréttaði að hvorki Grænland né Norður-Íshafið væru til sölu var eðlilega vel tekið hjá Grænlendingum og Dönum, og segir Frederiksen heimsókn Macrons enn eitt dæmið um sterka samstöðu Evrópuríkja í skugga válegra tíðinda í heimsmálum.
Komment