1
Innlent

Nýbygging Félagsbústaða vekur hroll og aðdáun

2
Innlent

Rannsókn á andláti Hans Löf lokið

3
Fólk

Sunneva tapaði 12 milljónum vegna svikahrapps á Tinder

4
Fólk

Ástráður og Eyrún skilja

5
Landið

Tvíburasystur björguðu barni í sundlauginni á Egilsstöðum

6
Landið

Benedikt valinn fram yfir Daníel Frey og Hörpu

7
Fólk

Styrktartónleikar haldnir fyrir fjölskyldu Víglundar

8
Fólk

Steinar og Katrín keyptu hús fyrir tæpan hálfan milljarð króna

9
Pólitík

Trump sat á móti Kristrúnu sem „fékk að minnsta kosti gott bros“

10
Innlent

Ný auglýsingaherferð Arion banka sögð „til skammar“

Til baka

Lögreglan varar við gjafaleikjum á Facebook

Svikahrappar geta leynst á ótrúlegustu stöðum á netinu

Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu
Tæplega 200 mál hingað til á árinuÞað gerir 33 mál að meðaltali.
Mynd: Víkingur

Það sem af er árinu hafa tæplega 200 mál komið á borð Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er tengjast netglæpum en greint er frá þessu í tilkynningu frá henni.

Það gera rúmlega 33 mál í hverjum mánuði, en miðað við reynslu hérlendis og á Norðurlöndunum má telja að fæst slíkra mála séu tilkynnt til lögreglu.

Þau mál sem lögregla hefur helst fengið tilkynningar og kærur um síðastliðnar vikur gagnvart einstaklingum eru:

Svika SMS-skilaboð
Gjafaleikir á Facebook
Símtöl þar sem aðilar segja að um vandamál sé að ræða í tölvu brotaþola
Tölvupóstar sem svipa til hinna svokölluðu Nígeríu-bréfa

Þá vill lögregla einnig vara við fjárfestingasvikum þar sem enn ber á tilkynntum málum þar sem fólk ætlar að fjárfesta í rafmyntum og brotamennirnir bjóðast til að aðstoða og óska eftir að fólk hlaði forriti inn í símann sinn eða inn í tölvuna sína.

Þá er lögregla sömuleiðis að fá tilkynningar um að fólk sé beðið um að samþykkja rafræn skilríki án þess að vera sjálft að reyna skrá sig inn og þess vegna áréttir lögregla að fólk skrái aldrei inn rafrænu skilríki sín nema vera 100% viss um upprunann. Þess ber líka að geta að til að taka á móti greiðslum er engin þörf á að samþykkja rafræn skilríki.

Samkvæmt lögreglunni hefur hún hefur fengið tilkynningar og kærur frá fyrirtækjum sem eru að fá tölvupósta, m.a. þar sem brotamenn komast inn í tölvupóstsamskipti milli söluaðila og kaupanda og senda falsaða reikninga eða breyta bankaupplýsingum vegna reikninga.

Að sögn lögreglu eykst fjöldi netglæpa yfir sumartímann.

Lögreglan vill hvetja fólk sem telur sig hafa orðið fyrir netglæp að setja sig í samband við lögreglu og viðskiptabanka sinn sem allra fyrst.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment


Lísbet og Katrín
Fólk

Tvíburasysturnar sem björguðu barninu: „Þetta fór vel og það skiptir öllu“

Eins og Mannlíf greindi frá fyrr í dag þá björguðu tvíburasystur litlu barni frá harmi í sundlauginni á Egilsstöðum
Hafnarfjörður 2024
Innlent

Hjólreiðamaður fluttur á bráðamóttökuna

Sundlaug Egilsstaða
Landið

Tvíburasystur björguðu barni í sundlauginni á Egilsstöðum

Lögreglan
Innlent

Réðst á tvö lögreglumenn í fangaklefa

Clark Olafsson
Heimur

Einn frægasti glæpamaður Svíþjóðar látinn

Jóhann Páll ráðherra
Innlent

Málsmeðferðartími aðila sem eru að hefja veitingarekstur styttur umtalsvert

Þorgerður Katrín á viðburði Riddara Kærleikans
Pólitík

Ráðherra veitir 150 milljón króna viðbótarframlagi til starfsemi UNRWA

Gugusar
Innlent

Ný auglýsingaherferð Arion banka sögð „til skammar“

Örvænting er algjör á Gaza.
Heimur

Fjórar úthlutunarstöðvar fyrir tvær milljónir manna

Leigubílar í röð
Innlent

Rannsókn á líkamsárás leigubílastjóra í Garðabæ lokið

Sæbraut hús
Fólk

Steinar og Katrín keyptu hús fyrir tæpan hálfan milljarð króna

Héraðsdómur Reykjavíkur
Innlent

Jóhann ók freðinn á gangandi konu

Innlent

Hafnarfjörður 2024
Innlent

Hjólreiðamaður fluttur á bráðamóttökuna

Ekið var á manninn í Hafnarfirði
Héraðsdómur Reykjavíkur
Innlent

Jóhann ók freðinn á gangandi konu

Lögreglan
Innlent

Réðst á tvö lögreglumenn í fangaklefa

Jóhann Páll ráðherra
Innlent

Málsmeðferðartími aðila sem eru að hefja veitingarekstur styttur umtalsvert

Gugusar
Innlent

Ný auglýsingaherferð Arion banka sögð „til skammar“

Leigubílar í röð
Innlent

Rannsókn á líkamsárás leigubílastjóra í Garðabæ lokið

Loka auglýsingu