
Lögreglan með viðbúnaðAlvarlegt atvik á hóteli
Mynd: Lára Garðarsdóttir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að hóteli í miðborginni á áttunda tímanum í morgun vegna alvarlegs atviks sem þar hafði orðið.
Heimildarmaður Mannlífs var nálægt á vettvangi áðan og sá hann nokkra lögreglubíla á staðnum, lögreglumenn ganga þar inn og út og voru sumir með myndavélabúnað.
Rannsókn málsins er á algjöru frumstigi og því er ekki unnt að greina frá því nánar að svo stöddu.
Frekari upplýsingar verða sendar fjölmiðlum í dag, eða eftir því sem málinu vindur fram.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment