
Um helgina var tilkynnt að Sigga á Grund hlyti menningarstyrk Flóahrepps árið 2025.
Er markmiðið að skjalfesta yfirlit og sögu útskurðarlistaverka sinna, og hlaut Sigga styrk að upphæð 500 þúsund krónur ásamt plöntu frá Gróðrastöðinni Kjarri og viðurkenningarskjal.
Er hér að ræða um bók sem skrásetur sögu listaverkanna; safna saman myndum og umfjöllunum varðandi hvernig þau voru búin til - úr hvaða efni og hvar þau eru staðsett í heiminum.
Þegar bókin lítur dagsins ljós er áætlað að halda viðburð í Flóahreppi til að fagna því að arfleið Siggu sé nú vandlega varðveitt.
Sigga á Grund - Sigríður Jóna Kristjánsdóttir - er listakona og útskuraðarmeistari og hennar sérþekking snýr að útskurði í tré.
Sigga hefur meðal annars skorið út allar gangtengundir íslenska hestsins; verk sem talin eru mikil listasmíð; eru mörg þeirra til sýnis í Tré og list í Forsæti í Flóahreppi.
Sigga er fædd í Villingaholti og hún er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps - hlaut þennan heiður á 80 ára afmæli sínu í fyrra.
Í nóvember í fyrra var hún gerð að heiðurslistamanni þjóðarinnar og áður hafði hún fengið Fálkaorðuna fyrir framlag sitt til þjóðlegrar listar.
Komment