1
Minning

Syrgja Víglund unga og stofnað til söfnunar

2
Innlent

Haraldur leigir út tíu íbúðir og lítur á sig sem félagsmálaþjónustu

3
Fólk

Dómsmáli Eddu Falak lokið

4
Innlent

Maður með stóran steikarhníf á leikskóla

5
Innlent

Barn hluti af líkamsárás

6
Innlent

Matgæðingur fluttur á bráðamóttökuna

7
Innlent

Fjórir vilja Breiðholt

8
Minning

Hörður Þorleifsson er látinn

9
Heimur

Liverpool-ökuníðingurinn hristi höfuðið þegar saksóknari lýsti verknaði hans

10
Innlent

Eldur mætti óboðinn

Til baka

Leit stendur yfir að sundmanni við Örfirisey

Mikill viðbúnaður við Fiskislóð.

Þyrla Landhelgisgæslunnar
Þyrla LandhelgisgæslunnarGríðarlegur viðbúnaður er vegna málsins.
Mynd: Björgvin Gunnarsson

Mikil leit stendur nú yfir að sundmanni sem hefur verið saknað í rúmar tvær klukkustundir úti fyrir Örfirisey í Reykjavík. Leit hófst á fimmta tímanum og hefur aðkoma viðbragðsaðila verið umfangsmikil.

Lögregla, slökkvilið með köfunarþjónustu, þyrla Landhelgisgæslunnar og fjöldi sjúkrabíla eru á vettvangi. Þá hafa björgunarskip og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar einnig verið kallaðar út.

Leit
Leit stendur yfirTilkynning um sundmanninn barst um hálf fimm í dag.
Mynd: Björgvin Gunnarsson

Viðbragð er einkum miðað við grjótgarðana við Fiskislóð. Björgunarsveitarmenn og lögregla taka þátt í leitinni með björgunarbátum, einkabát og úr þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem var kölluð út með hæsta forgangi.

Lögreglan hefur jafnframt kallað út kafara frá sérsveit ríkislögreglustjóra, samkvæmt upplýsingum frá Helenu Rós Sturludóttur, upplýsingafulltrúa embættisins, að því er fram kemur í frétt RÚV.

Leit
Frá leitinniFjölmargir taka þátt í leitinni.
Mynd: Björgvin Gunnarsson

Að minnsta kosti fjórir sjúkrabílar, körfubíll, lögreglubílar og mótorhjól eru einnig við störf á svæðinu.

Samkvæmt heimildum Mannlífs er sundmaðurinn erlendur en vinir hans eru á vettvangi en vildu ekki tjá sig við fjölmiðla.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


býflugur
Heimur

250 milljónir býflugna sluppu eftir slys

Jóhanna Björg
Sport

Jóhanna Björg vill verða forseti

Landspítalinn
Innlent

Matgæðingur fluttur á bráðamóttökuna

Leit
Innlent

Lögreglan staðfestir andlát mannsins

Víglundur Þorsteinsson
Minning

Syrgja Víglund unga og stofnað til söfnunar

Sveindís Jane
Sport

Kvennalandsliðið kastaði frá sér sigri

Yasin
Heimur

Tónleikum í Svíþjóð aflýst vegna morðsamsæris

Loka auglýsingu