
Bergsveinn Birgisson rithöfundur og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona, virðast hafa lokið skiptum á sínum málum.
Bergsveinn birti á dögunum færslu á Facebook þar sem nauðungaruppboð á íbúð sem hann átti með Steinunni Ólína var auglýst. Eyddi hann færslunni nokkrum dögum síðar en samkvæmt heimildum Mannlífs leystist málið farsællega.
Þau Steinunn og Bergsveinn hófu ástarsamband sitt árið 2019 en hann hefur undanfarin ár búið í Björgvin í Noregi. Fréttir af sambandi þeirra birtist á sínum tíma í fjölmiðlum á borð við DV, Morgunblaðinu og Vísi. Viðskilnaður þeirra varð fyrir nokkru síðan, en eftir stóð að leysa úr sameiginlegu eignarhaldi þeirra á íbúðinni við Fiskislóð á Granda í Reykjavík.
Steinunn Ólína opnaði sig um samband sitt við Bergsvein í viðtali í Fréttablaðinu árið 2021 þar sem hún sagði meðal annars: „Að elska og vera elskaður er mikilvægast af öllu. Ég hefði verið sjálfri mér verst og algjört fífl ef ég hefði neitað mér um að kynnast Bergsveini betur þrátt fyrir að stutt væri frá andláti Stefáns. Og auðvitað bráðheppin að hann gat hugsað sér að elska mig líka.“
Bergsveinn er þekktur fyrir skáldsögur á borð við Landslag er aldrei asnalegt, Svar við bréfi Helgu og Lifandilífslækur.
Steinunn Ólína er ein af ástsælustu leikkonum landsins en hún hefur leikið í fjölmörgum leikritum fyrir Leikfélag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið, auk fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda. Þá bauð hún sig fram til forseta í síðustu forsetakosningum. Hún er nú í sambandi með Gunnari Gylfasyni framkvæmdastjóra.
Komment