1
Innlent

Íris Helga kærði blaðamann DV

2
Innlent

Linda Pétursdóttir og fimmtíu aðrir vilja nýja stöðu verkefnastjóra sam­skipta

3
Innlent

Bendir á hræsni Sjálfstæðismanna

4
Peningar

Halla Tómasdóttir fær 100 milljónir í arð

5
Minning

Unnar Stefánsson er fallinn frá

6
Innlent

Bullandi tap hjá eigendum Morgunblaðsins

7
Heimur

Týndi Skotinn fundinn

8
Fólk

Egill Helgason um kanadískan fyrirlesara: „Hvílíkur endemis auli“

9
Fólk

Hrefna ráðin í starfið

10
Peningar

Mogginn fær innspýtingu eftir tap upp á milljón á dag

Til baka

Leiðir skilja endanlega hjá Steinunni Ólínu og Bergsveini

Leikkonan og rithöfundurinn loka sínum málum.

steinunnolina_bergsveinn
Steinunn Ólína og BergsveinnSteinunn og Bergsveinn hættu saman árið 2022.
Mynd: Samsett

Bergsveinn Birgisson rithöfundur og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona, virðast hafa lokið skiptum á sínum málum.

Bergsveinn birti á dögunum færslu á Facebook þar sem nauðungaruppboð á íbúð sem hann átti með Steinunni Ólína var auglýst. Eyddi hann færslunni nokkrum dögum síðar en samkvæmt heimildum Mannlífs leystist málið farsællega.

Þau Steinunn og Bergsveinn hófu ástarsamband sitt árið 2019 en hann hefur undanfarin ár búið í Björgvin í Noregi. Fréttir af sambandi þeirra birtist á sínum tíma í fjölmiðlum á borð við DV, Morgunblaðinu og Vísi. Viðskilnaður þeirra varð fyrir nokkru síðan, en eftir stóð að leysa úr sameiginlegu eignarhaldi þeirra á íbúðinni við Fiskislóð á Granda í Reykjavík.

Steinunn Ólína opnaði sig um samband sitt við Bergsvein í viðtali í Fréttablaðinu árið 2021 þar sem hún sagði meðal annars: „Að elska og vera elskaður er mikilvægast af öllu. Ég hefði verið sjálfri mér verst og algjört fífl ef ég hefði neitað mér um að kynnast Bergsveini betur þrátt fyrir að stutt væri frá andláti Stefáns. Og auðvitað bráðheppin að hann gat hugsað sér að elska mig líka.“

Bergsveinn er þekktur fyrir skáldsögur á borð við Landslag er aldrei asnalegt, Svar við bréfi Helgu og Lifandilífslækur.

Steinunn Ólína er ein af ástsælustu leikkonum landsins en hún hefur leikið í fjölmörgum leikritum fyrir Leikfélag Reykjavíkur, Leikfélag Akureyrar og Þjóðleikhúsið, auk fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda. Þá bauð hún sig fram til forseta í síðustu forsetakosningum. Hún er nú í sambandi með Gunn­ari Gylfa­syni fram­kvæmda­stjóra.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Volker Turk
Heimur

Bandaríkjastjórn refsar fjórum dómurum með því að frysta eigur þeirra

Arne Bye
Heimur

Norskur kvensjúkdómalæknir dæmdur fyrir tugi nauðgana

Cho Tun Aung
Heimur

Sex ára stelpa handtekin vegna morðs á hershöfðingja

Þórshöfn við Þistilfjörð
Landið

„Ég náði dúninum en varpið fór forgörðum“

Kristrún Frostadóttir1
Pólitík

Kristrún gerir ekki það sama og Bjarni Ben

Kvennalandsliðið
Sport

Góðir möguleikar hjá kvennalandsliðinu

Hallgrímur Helgason
Pólitík

Hallgrímur hæðist að „hefnd flottu krakkanna“

parisarhjol2
Innlent

Borgin semur við umdeilt tívolí

Loka auglýsingu