Í dagbók lögreglu frá því í nótt er greint frá því ökumaður hafi verið stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna og áfengis. Ökumaðurinn var látinn laus eftir sýnatöku.
Tilkynnt var um þjófnað í verslun en ekki liggur fyrir hvaða verslun um ræðir. Þá voru ökumenn kærðir vegna umferðarlagabrota og þeir allir lausir eftir vettvangsskýrslu.
Ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna. Hann hafði þá ekið gegn rauðu ljósi, var sviptur ökuréttindum og var með hníf meðferðis. Ökumaðurinn var handtekinn og fluttur á lögreglustöð vegna málsins.
Lögreglan fékk tilkynningu um líkamsárás og þjófnað og er málið í rannsókn.
Þá var brotist inn í verslun og fjármunir teknir úr peningakassa. Eftirlitsmyndavélar eru í versluninni sem náðu atburðarásinni á mynd samkvæmt lögreglu og er málið er í rannsókn.
Komment