
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vill að ríkisstjórn sín breyti aðferðinni sem notuð er til að uppfæra laun æðstu embættismanna, alþingismanna, ráðherra og forseta. Fyrir stuttu síðan sagði hún að ríkisstjórn hennar myndi ekki aðhafast neitt í málinu.
Sagði Kristrún þetta í pontu Alþingis í dag í kjölfar óundirbúinnar fyrirspurnar formanns Sjálfstæðisflokksins, Guðrúnar Hafsteinsdóttur.
Komið hefur fram að laun æðstu ráðamanna hækki um 5,6 prósent um næstu mánaðamót, en til samanburðar hafa laun á almennum vinnumarkaði einungis hækkað um 3,5 prósent á síðastliðnu ári.
Guðrún spurði um afstöðu Kristrúnar til launahækkananna fyrir tveimur árum, en þá sagði Kristrún í samtali við Morgunblaðið að þær launahækkanir sendu röng skilaboð til vinnumarkaðarins.
Kom fram í máli Kristrúnar í síðustu viku að ríkisstjórnin myndi ekki aðhafast eitthvað í málinu.
Guðrún spurði Kristrúnu af hverju stjórnin hefði ákveðið að halda í þessa 5,6 prósent.
Að mati Kristrúnar eru einungis tveir kostir í stöðunni: Annars vegar það að handstýra launum á ári hverju og hins vegar að leggja í kerfisbreytingar til lengri tíma litið.
„Það er vilji þessarar ríkisstjórnar að eiga samtal við vinnumarkaðinn strax á næstu vikum. Þá getum við komið með nýtt frumvarp og breytt þessu,“ sagði hún í samtali við mbl.is.
Kristrún bauð að lokum Guðrúnu og þingmönnum minnihlutans með í það ferðalag að breyta núverandi kerfi til uppfærslu launa æðstu ráðamanna.
Komment