1
Innlent

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara

2
Heimur

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf

3
Pólitík

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig

4
Heimur

Netanyahu viðurkennir að vopnaður glæpahópur starfi fyrir Ísrael á Gaza

5
Innlent

Sýra lak úr 1000 lítra bamba

6
Innlent

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

7
Heimur

Elon Musk virðist sjá eftir Epstein-færslunni

8
Innlent

Börn stöðvuð á samfélagsmiðlum

9
Heimur

Greta Thunberg og félagar nálgast Gaza-ströndina

Til baka

Kristrún afneitar trúnaðarbresti

Ásthildur Lóa fékk að vita hver tilkynnti hana - og fór svo heim til viðkomandi.

Kristrún Frostadóttir
ForsætisráðherraAðstoðarmaður Kristrúnar Frostadóttur miðlaði nafni tilkynnanda til barnamálaráðherra.
Mynd: AFP

Forsætisráðuneyti Kristrúnar Frostadóttur hefur hafnað þeirri túlkun að aðstoðarmaður hennar hafi rofið trúnað þegar nafni tilkynnanda var miðlað til mennta- og barnamálaráðherra.

Aðstandandi manns sem eignaðist barn með Ásthildi Lóu Þórsdóttur barnamálaráðherra, þegar hann var sjálfur nýorðinn sextán ára gamall en hún 23 ára, tilkynndi um málið til forsætisráðuneytisins í síðustu viku. Um leið bárust upplýsingar um aðstandandann, sem Ásthildur kallar „Ólöfu“ í viðtali við Stöð 2, til Ásthildar sjálfrar. Í kjölfarið hringdi hún ítrekað í tilkynnandann og fór heim til hennar.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu er því hafnað að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða.

„Fullyrðingar sem fram komu í fréttum RÚV um að forsætisráðuneytið hafi rofið trúnað með upplýsingagjöf til mennta- og barnamálaráðherra eiga ekki við rök að styðjast. Hið rétta er eftirfarandi.

Með tölvupósti 9. mars. síðastliðinn barst forsætisráðherra beiðni um 5 mínútna fund án þess að fundarefnið væri tilgreint. Þann 11. mars barst aftur tölvupóstur frá sama aðila þar sem fyrri ósk um fund var ítrekuð. Þar var einnig tekið fram að erindið varðaði mennta- og barnamálaráðherra og að það væri í góðu lagi að mennta- og barnamálaráðherra sæti fundinn. Að öðru leyti komu engar frekari upplýsingar fram um tilefni fundarbeiðninnar.

Þar sem beiðnin var um fund með bæði forsætisráðherra og mennta- og barnamálaráðherra spurði aðstoðarmaður forsætisráðherra aðstoðarmann mennta- og barnamálaráðherra hvort hann þekkti til sendanda eða vissi um hvað málið snerist. Svo var ekki. Önnur samskipti áttu sér ekki stað um málið. Í kjölfarið var þess óskað með tölvupósti að sendandi myndi skýra erindið frekar. Þá barst svar með tölvupósti þann 13. mars þar sem gerð var nánari grein fyrir tilefni fundarbeiðninnar. Samskipti um það áttu sér ekki stað milli forsætisráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis fyrr en í dag.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Komment


Madleen
Heimur

Greta Thunberg og félagar nálgast Gaza-ströndina

Trump og Musk
Heimur

Elon Musk virðist sjá eftir Epstein-færslunni

Kristinn Hrafnsson
Innlent

Segir þjóðarmorð nú orðið að meginstraumsviðhorfi

breidagerdisskoli3
Innlent

Drengir útilokaðir frá kennslu eftir kvörtun vegna kennara

Christian Brueckner
Heimur

Sá grunaði í hvarfi Madeleine sendi lögreglunni óhugnanlegt bréf

Benjamin Netanyahu
Heimur

Netanyahu viðurkennir að vopnaður glæpahópur starfi fyrir Ísrael á Gaza

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Pólitík

Þóra Kristín rífur stjórnarandstöðuna í sig

slökkvilið
Innlent

Sýra lak úr 1000 lítra bamba

Loka auglýsingu