
Konan er frá Brasilíu og maðurinn frá GrikklandiReyndu að smygla kókaíni til landsins
Mynd: Víkingur
Ákærð fyrir smygl á 2,5 kílóum af kókaíni
Héraðssaksóknari hefur nú ákært karlmann Grikklandi sem er á fimmtugsaldri sem og konu á fertugsaldri frá Brasilíu fyrir smygl á kókaíni.
Var fólkið handtekið á Keflavíkurflugvelli við komu til landsins frá borginni Alicante á Spáni í mars síðastliðnum.
Grikkinn og konan frá Brasilíu voru samanlagt með tvö og hálft kíló af efninu hættulega falið innan klæða.
Kemur fram í tilkynningu að konan var með rúmlega 1.100 grömm af kókaíni og maðurinn með tæp 1.400 grömm.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment