
Leikarinn Jonathan Joss, sem er þekktur fyrir hlutverk sitt í teiknimyndaseríunni King of the Hill þar sem hann talaði fyrir John Redcorn, er látinn eftir að hafa verið skotinn af nágranna sínum í Texas.
Samkvæmt lögreglunni í San Antonio og sjónarvottum kom upp ágreiningur milli Joss og nágranna hans í gær, sem endaði með blóðugum átökum.
Lögreglan segir að ótilgreindur nágranni hafi dregið upp skotvopn og skotið leikarann nokkrum sinnum áður en hann flúði á bíl. Lögreglumenn brugðust við tilkynningu um skotárás og fengu lýsingu á bifreiðinni. Lögreglan náði að handtaka þann grunaða skammt frá vettvangi.
Á meðan reyndu sjúkraflutningamenn að veita aðstoð á vettvangi, en án árangurs. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglunni og er að ræða við vitni til að reyna að komast að því hvað olli átökunum.
Hann lék einnig í þáttunum Parks and Recreation, Tulsa King og Ray Donovan og myndunum True Grit og The Magnificent Seven
Joss var 59 ára gamall.
Komment