
Rokkhljómsveitin geðþekka Kaleo hefur sent frá sér nýtt lag en um er að ræða ábreiðu af einni þekktustu vögguvísu Íslands.
„Sofðu unga ástin mín er angurvær vögguvísa sem flest börn þekkja. Ljóðið sem kom út árið 1912 er eftir Jóhann Sigurjónsson og var samið fyrir leikritið Fjalla Eyvind. Sofðu unga ástin mín er jafnframt merkilegt fyrir þær sakir að það er eitt fárra þjóðlaga sem enginn veit hver samdi. Vögguvísan Sofðu unga ástin mín er því vísun í þjóðsögu,“ segir í tilkynningu hljómsveitarinnar.
Sveitin hefur heldur betur náð góðum árangri erlendis síðan hún gaf út sína fyrstu plötu árið 2013 og hafa lög sveitarinnar verið í mörgum vinsælustu tölvuleikjum, kvikmyndum og sjónvarpsþáttum síðustu 10 ára.
Komment