
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir hefur tilkynnt að hún sækist eftir embætti forseta Skáksambands Íslands en gerir það með tilkynningu á Skák.is.
Kosið verður um forseta á aðalfundi sambandsins en hann verður haldinn 14. júní á Blöndósi.
Að sögn Jóhönnu hefur hún sinnt fjölbreyttum og ábyrgðarfullum störfum innan íslenskrar skákhreyfingar. Sem dæmi þess efnis nefnir hún að hún hefur verið Varaforseti Skáksambands Íslands, formaður kvennaskáknefndar og formaður stjórnar Skákskóla Íslands.
Þá hefur hún einnig verið skákkennari m.a. hjá Taflfélaginu Helli, skákdeild Fjölnis og Hauka og Skákskóla Íslands og verið virkur þátttakandi í umbótastarfi innan skákhreyfingarinnar með áherslu á málefni stúlkna og kvenna, siðareglur, agamál og uppbyggingu heilbrigðs og hvetjandi skákumhverfis
„Með þessu framboði býð ég fram krafta mína til að hlúa að fjölbreytileika hreyfingarinnar, efla samstarf og tryggja traustan grunn fyrir komandi kynslóðir skákmanna og -kvenna,“ segir Jóhanna.
Komment