
Jón Ingi Cæsarsson fyrrverandi formaður Póstmannafélags Íslands lést á hjartadeild Landspítalans þann 7. júní síðastliðinn. Hann var 72 ára að aldri. Mbl.is greindi frá andláti hans.
Jón Ingi fæddist 13. desember 1952 í Reykjavík en ólst upp á Eyrinni á Akureyri. Bjó þar að mestu alla sína ævi.
Jón Ingi starfaði hjá Pósti og síma, síðar Íslandspósti og Póstinum allan sinn starfsferil.
Jón Ingi vann mikið og lengi að bæjarmálum á Akureyri fyrir Samfylkinguna og var hann kjörinn formaður flokksins á Akureyri við stofnun hans árið 2001.
Hann var um tíma varabæjarfulltrúi fyrir flokkinn, átti sæti í nokkrum nefndum Akureyrarbæjar og var formaður skipulagsnefndar og umhverfisráðs. Hann var einnig í nefnd um svæðisskipulag Eyjafjarðar.
Eftirlifandi eiginkona Jóns Inga er Guðrún Gunnarsdóttir og synir þeirra eru Atli Viðar og Bjarki Freyr. Dóttir Jóns Inga og Margrétar Pálu Ólafsdóttur er Brynja og barnabörnin eru níu talsins, langafabörnin þrjú.
Komment