
Nefúðinn Naloxone er nú aðgengilegur í öllum fangelsum landsins og er Ísland fyrsta landið í heiminum er dreifir nefúðanum í öll fangelsi.
Hér er um er að ræða samstarfsverkefni Fangelsismálastofnunar, Matthildarsamtakanna og Afstöðu, félags fanga.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá Fangelsismálastofnun, Matthildarsamtakönum og Afstöðu.
Naloxone er bráðalyf gegn ofskömmtun á ópíóíðum og sé það gefið tímanlega getur það bjargað mannslífum með því að snúa við öndunarbælingu sem og öðrum skaðlegum afleiðingum ofskömmtunar.
Matthildarsamtökin, í samvinnu við jafninga frá Afstöðu, munu sjá um að veita fræðslu um hættur vegna notkunar ópíóíða sem og notkun Naloxone inn á öllum göngum í fangelsum hér á landi.
Fangelsismálastofnun hefur nú þegar pantað Naloxone nefúðann og þá fá fangaverðir þjálfun í skyndihjálp og notkun nefúðans.
Heilbrigðisráðuneytið mun greiða kostnaðinn við dreifingu Naloxone á Íslandi.
Fram kemur í tilkynningu að verkefnið sé viðbragð við haldlagningu Tollgæslunnar í apríl síðastliðnum á 20 þúsund fölsuðum Oxycontin töflum, er innihéldu Nitazene, sem er margfalt öflugra og hættulegra en Oxycontin.
Einnig segir að lyfjatengd andlát á Íslandi voru 56 árið 2023. Af þeim voru 61 prósent af völdum ópíóíða.
Komment