
Halla Hrund Logadóttir þingmaður Framsóknarflokksins, sem og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, seldi nýverið íbúð sína í Fossvogi, en hér er um að ræða fallega 90 fermetra íbúð í blokk er reist var árið 1973.
Festi Halla Hrund kaup á íbúðinni, ásamt eiginmanni sínum, Kristjáni Frey Kristjánssyni, á vordögum árið 2021.
Vegna fyrirhugaðra flutninga í annað hverfi settu hjónin íbúðina á sölu nýverið.
Íbúðin var nokkuð til umræðu í kosningabaráttu Höllu Hrundar og talið var af ýmsum er vel til þekkja að fólkið á Íslandi hafi tengt betur við Höllu Hrund ef það vissi að hún byggi í blokk.
Nú er þessi fræga íbúð seld og kaupendur eru þau Íris Dögg Björnsdóttir og Egill Már Halldórsson og greiddu þau tæpar 100 milljónir króna fyrir íbúðina.
Halla Hrund og Kristján eru hins vegar nýbúin að festa kaup á sérbýli í Árbæ.
Komment