
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur tekið ákvörðun um að breyta 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra en greint er því í tilkynningu frá stjórnarráðinu
Slík bílastæði skulu nú vera sem næst aðalinngangi bygginga og ekki fjær þeim en 25 metrar og er þetta breyting byggingarreglugerð nr. 112/2012.
„Áður leyfði reglugerðin framkvæmdaaðilum að staðsetja bílastæði fyrir hreyfihamlaða yst á bílastæðum og sem lengst frá inngangi. En ekki lengur,“ sagði Inga Sæland um málið. „Nauðsynlegt var að grípa inn í og breyta reglugerðinni. Reglan um 25 metrana gildir alls staðar á Norðurlöndunum og auðvitað á það að vera eins á Íslandi. Gleymum því aldrei að samfélagið okkar er fyrir okkur öll. Til að svo megi verða þurfum við að tryggja aðgengi fyrir alla.“
Samkvæmt stjórnarráðinu var ofangreint ákvæði um 25 metra fjarlægðarreglu vegna bílastæða hreyfihamlaðra fellt brott úr reglugerðinni árið 2016 en hefur nú verið sett inn að nýju.
Komment