
Sex gistu fangageymslu lögregluMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Shutterstock
Í dagbók lögreglu frá því nótt og í gær er greint frá því að lögreglan hafi fengið tilkynningu um innbrot í miðbænum. Skömmu síðar var aðili handtekinn skammt frá vettvangi með meint þýfi meðferðis. Sá var vistaður í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins.
Að minnsta kosti fimm einstaklingar voru teknir fyrir að keyra undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og í sumum tilfellum bæði. Þá voru nokkrir stöðvaðir vegna umferðarlagabrota, ýmist vegna hraðakstur eða fyrir akstur sviptir ökuréttindum.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment