
Gullfallegt hús Arndísar Bjargar Sigurgeirsdóttur bóksala og Báru Kristínar Kristinsdóttur ljósmyndara er aftur komið á sölu en það hefur verið á sölu með hléum síðan seinni part 2023.
Um er að ræða eitt fallegasta hús Kópavogs en ekkert söluverð er skráð á húsið. Það stendur hátt á hornlóð með tilkomumiklu útsýni. Guðmundur Þór Pálsson teiknaði húsið.
„Húsið stallast fallega innbyrðis, sem gerir flæði á milli eldhúss, borðstofu og þvottahúss mjúkt og átakalaust. Komið er inn í fallegt anddyri en gólfhiti er í öllum gólfum á neðri og efri hæð, utan hjónaherbergis sem er með hefðbundnum ofnum,“ segir í lýsingu um húsið.
„Neðri hæðin hefur áður hýst fimm svefnherbergi, en þrjú þeirra hafa verið sameinuð í rúmgott alrými. Eitt þeirra er nýtt sem skrifstofa í dag. Einnig er þar baðherbergi með sturtu, miklir forstofuskápar ásamt geymslum og innangengt er í bílskúrinn.“
Eignin er skráð 335.6m² að stærð.








Komment