
Hundurinn kom frá BandaríkjunumMyndin tengist fréttinni ekki beint
Mynd: The Animal Haven
Eins hreyfils flugvél nauðlenti á Suðurlandsvegi seint í gærkvöldi eins og greint var frá í fjölmiðlum.
Flugmaðurinn var einn um borð ásamt hundi sínum. Ferðalagið hófst í Bandaríkjunum en förinni var heitið til Bretlands.
Samkvæmt tilkynningu frá MAST tók lögregla á vettvangi hundinn í sína vörslu. Í morgun var hundurinn fluttur í einangrun undir eftirliti Matvælastofnunar þar sem eftirlitsdýralæknir skoðaði hann og tók sýni til greiningar. Hundurinn mun dvelja áfram í einangrun á meðan gerðar eru ráðstafanir um brottför hans frá Íslandi.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Komment