
Þrír gistu fangaklefa í dag37 mál voru skráð í kerfið.
Mynd: Hafnarfjarðarbær
Í dagbók lögreglu frá því í dag er greint frá því að ekið hafi verið á hjólareiðamann í Hafnarfirði. Hann var í kjölfarið fluttur á bráðamóttöku Landspítalans með minni háttar meiðsli að sögn lögreglu. Þá fékk lögreglan einnig tilkynningu um líkamsárás í Hafnarfirði
Lögreglan hafði afskipti af ökumanni sem var að aka bifreið sinni undir áhrifum fíkniefna. Ökumaður bifreiðarinnar reyndist einnig sviptur ökuréttindum.
Tilkynnt var um þjófnað og umferðarslys í ótengdum málum í Árbænum.
Nokkrir ökumenn voru sektaðir fyrir að keyra of hratt. Fimm ökumenn voru sviptir ökuréttindum sínum fyrir að aka of hratt á vinnusvæði þar sem hámarkshraði er 30.
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa
Komment